Erlent

Miðjarðarhaf: Tugir látnir eftir að bátur sökk

Atli Ísleifsson skrifar
Allt að 950 manns drukknuðu þegar bátur sökk undan ströndum Líbíu um helgina.
Allt að 950 manns drukknuðu þegar bátur sökk undan ströndum Líbíu um helgina. Vísir/AFP
Neyðarboð barst í morgun frá báti í Miðjarðarhafi með um þrjú hundruð flóttamenn um borð.

Að sögn AP er haft eftir Alþjóðaflóttamannastofnuninni (IOM) að tuttugu manns hið minnsta hafi drukknað.

Hvorki liggur fyrir hvert báturinn er á leið, né hvar nákvæmlega í Miðjarðarhafi báturinn er staddur.

Þá hafa tveir bátar til viðbótar sent úr beiðni um aðstoð.

Fyrr í dag bárust fréttir af því að þrír hafi drukknað eftir að bátur sökk undan grísku eyjunni Rhódos.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×