Erlent

Miðjarðarhaf: Þetta hefur gerst síðustu daga

Atli Ísleifsson skrifar
Bátur með fjölda flóttamanna um borð strandaði við grísku eyjuna Rhódos í gær.
Bátur með fjölda flóttamanna um borð strandaði við grísku eyjuna Rhódos í gær. Vísir/AFP
Um 800 flóttamenn létu lífið þegar illa búinn og ofhlaðinn bátur sökk undan strönd Líbíu á sunnudaginn. Málefni flóttafólks sem reynir að koma sér til Evrópu um Miðjarðarhaf hafa mikið verið rædd síðustu daga og hefur sænska ríkissjónvarpið tekið saman það helsta sem gerst hefur síðustu daga.

19. apríl: Veiðibátur með mikinn fjölda flóttamanna sekkur í líbískri landhelgi, um 210 kílómetrum frá ítölsku eynni Lampedusa. Rúmlega 800 manns voru um borð og einungis tekst að bjarga lífi 27. Að sögn hvolfdi báturinn eftir að fólk um borð flykktist yfir á aðra hlið bátsins þegar portúgalskt skip nálgaðist bátinn.

19. apríl: Rúmlega tuttugu skip og fjöldi þyrla taka þátt í björgunaraðgerðum.

20. apríl: Fyrstu lík hinna látnu eru flutt til maltnesku höfuðborgarinnar Valetta. Nokkrir þeirra sem lifðu slysið af segja mikinn fjölda flóttamannanna hafa verið læstan inni í vörugeymslu bátsins. Einnig á að hafa verið mikill fjöldi barna um borð.

20. apríl: Utanríkisráðherrar aðildarríkja ESB funda í Lúxemborg til að ræða hvernig bregðast skuli við ástandinu. Ráðherrarnir kynna nýja viðbragðsáætlun í tíu liðum. Ítalskir fjölmiðlar greina jafnframt frá því að til standi að tvöfalda framlög til málaflokksins.

20. apríl: Lögregla á Ítalíu handtekur 24 manns í Palermo á Sikiley vegna gruns um aðild að alþjóðlegu neti sem hagnast á smygli á flóttafólki. Hinir handteknu eru taldir tengjast bátnum sem sökk á sunnudag.

20. apríl: Bátur með fjölda flóttamanna um borð strandar við grísku eyjuna Rhódos. Báturinn sigldi frá Tyrklandi með 83 um borð. Að minnsta kosti þrír létust, þar af eitt barn.

20. apríl: Neyðarboð berast frá tveimur bátum til viðbótar. Forsætisráðherra Ítalíu segir málið annars vegar snúast um flota gúmmíbáta með milli 100 og 150 manns um borð um 300 kílómetrum norður af Líbíu og hins vegar stærri bát með um 300 manns um borð. Að sögn Alþjóðaflóttamannastofnunarinnar létust tuttugu manns um borð í stærri bátnum.

20. apríl: Donald Tusk, forseti leiðtogaráðs ESB, boðar til neyðarfundar hjá leiðtogum aðildarríkja ESB til að ræða ástandið í Miðjarðarhafi. Fundurinn fer fram í Brussel á fimmtudaginn kemur.

21. apríl: Lögregla handtekur skipstjórann og annan mann í áhöfn bátsins sem hvolfdi á sunnudaginn. Talsmaður Sameinuðu þjóðanna staðfestir að rúmlega 800 manns hafi látist.

21. apríl: Fulltrúar Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Alþjóðaflóttamannastofnunarinnar ræða við þá 27 sem lifðu af slysið á sunnudaginn. Þeir sem lifðu af eru frá Malí, Gambíu, Senegal, Sómalíu, Erítreu og Bangladess. Þeir hafa verið fluttir í miðstöð fyrir flóttamenn og hlúð er að einum á sjúkrahúsi í ítölsku borginni Catania á Sikiley.


Tengdar fréttir

Kefst aðgerða frá ESB

Forsætisráðherra Ítalíu, Matteo Renzi, krefst þess að Evrópusambandið leggi meira af mörkum á Miðjarðarhafi þar sem flóttamannavandinn frá Líbýu er nú meiri en nokkru sinni fyrr.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×