Sport

Miðasala hafin á bardaga Gunna og Dong

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Það er vissara að kaupa miða snemma ef menn vilja sjá þennan bardaga.
Það er vissara að kaupa miða snemma ef menn vilja sjá þennan bardaga. vísir/getty
Gunnar Nelson var í Belfast í dag að auglýsa sinn næsta bardaga gegn Dong Hyun Kim.

Bardagi þeirra fer fram þann 19. nóvember og er aðalbardagi kvöldsins.

Miðasala hófst í dag fyrir meðlimi í UFC Fight Club og almenn miðasala hefst svo í kjölfarið. Hægt er að nálgast miðasöluna hér.

Það er mikil stemning ytra fyrir bardagakvöldinu og Gunnar hitti fjölda fjölmiðla að máli allan daginn til þess að auglýsa kvöldið.

Það fer fram í SSE Arena og verða væntanlega seldir um ellefu þúsund miðar á kvöldið.

MMA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×