Fótbolti

Miðasala á leikinn í Nice hefst í dag

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Vísir/Vilhelm
Miðasala fyrir leik Íslands og Englands í 16-liða úrslitum EM í Frakklandi hefst á heimasíðu UEFA í dag klukkan 12.00.

Fram kemur á heimasíðu KSÍ að röð fyrir miðasöluna opni klukkan 11.45 og að farið verði eftir þeirri einföldu reglu að fyrstir koma, fyrstir fá.

Enn fremur er sagt að söluglugginn sé opinn öllum, Íslendingum sem og öðrum. Ekki kemur fram hvort að hluti miðanna sem fari í sölu fyrir leikinn verði eyrnamerktur stuðningsmönnum Íslands.

Þó er nú þegar hópur stuðningsmanna með miða sem gerir þeim kleift að fylgja sínu liði út alla keppnina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×