Lífið

Miðasala á Eurovision hefst á fimmtudag

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Hinn sænski Måns Zelmerlöw stóð upp sem sigurvegari í Eurovision í vor.
Hinn sænski Måns Zelmerlöw stóð upp sem sigurvegari í Eurovision í vor. vísir/ebu
Stillið klukkurnar, leggið kortanúmerið á minnið og komið puttunum fyrir á F5-hnappnum. Hið sænska Aftonbladet greinir frá því að fyrstu miðarnir á Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva á næsta ári fari í sölu á fimmtudaginn næstkomandi.

Þrátt fyrir að nákvæmari upplýsingar liggi ekki fyrir fyrr en á morgun segja heimildir sænska miðilsins að miðasalan hefjist klukkan 9 á fimmtudagsmorgunn að íslenskum tíma.

Þá munu miðar á undankvöldin, sem og úrslitakvöldið, fara í sölu. Globe-höllin í Stokkhólmi tekur um 14 til 16 þúsund manns í sæti þannig að þeir allra fyrstu ættu að vera nokkuð öruggir með að tryggja sér sæti. Rétt er þó að minna á að röð keppenda liggur ekki fyrir að svo stöddu þannig að við Íslendingar vitum ekki hvenær fulltrúi okkar stígur á stokk.

Miðaverðið hefur ekki verið staðfest en Aftonbladet segir að ódýrustu miðarnar gætu jafnvel farið á um 100 sænskar krónur, jafnvirði 1500 íslenskra króna. Sænska ríkissjónvarpið, sem heldur utan um keppnina á næsta ári, hefur lýst því yfir að það muni reyna hvað það getur til að sporna við svartamarkaðsbraski með miðana.

Keppnin fer fram í Stokkhólmi 10., 12. og 14. maí næstkomandi.  Keppnin var síðast haldin þar í landi árið 2013 eftir sigur Loreen árið áður.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×