Leikjavísir

Microsoft og Sony neita því að upplýsingum hafi verið stolið

Bjarki Ármannsson skrifar
Sony neitar því að leyninlegum upplýsingum Xbox-notenda hafi verið stolið.
Sony neitar því að leyninlegum upplýsingum Xbox-notenda hafi verið stolið. Vísir/AP
Bæði Sony og Microsoft hafa nú neitað því að persónuupplýsingum notenda leikjaþjónustu þeirra hafi verið stolið og lekið á netið. Meðlimir nethópsins DerpTrolling héldu því fram á fimmtudag að þeir hefðu með tölvuhakki komist yfir póstföng og lykilorð rúmlega 3,500 notenda Xbox Live og PlayStation Network.

Vefurinn Gamespot greinir frá. Sony, sem á PlayStation, sendi frá sér tilkynningu á sunnudaginn þar sem þvertekið var fyrir það að upplýsingunum hefði verið stolið. Microsoft, sem á Xbox, gerði slíkt hið sama í dag. Fyrirtækin segjast hafa rannsakað málið samstundis og komist að þeirri niðurstöðu að ekkert sé til í fullyrðingum DerpTrolling.

Hópurinn sagðist einnig hafa komist yfir leynilegar upplýsingar notenda 2K Games, sem hafa ekki sent frá sér tilkynningu um málið. DerpTrolling hefur verið hent út af Twitter, þar sem þeir gortuðu sig af hakkinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×