Golf

Mickelson jafnaði met á opna breska með frábærum hring

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Phil Mickelson var grátlega nálægt því að vera fyrsti maðurinn á 62 höggum á risamóti.
Phil Mickelson var grátlega nálægt því að vera fyrsti maðurinn á 62 höggum á risamóti. vísir/getty
Phil Mickelson slakaði ekkert á seinni níu holurnar á fyrsta hring opna breska meistaramótsins en hann er efstur á mótinu og verður það nær örugglega eftir fyrsta dag.

Mickelson fór fyrsta hringinn á 63 höggum eða átta höggum undir pari. Hann fékk átta fugla, fjóra á fyrri níu og fjóra á seinni níu, og engan skolla.

Með þessum árangri jafnaði Mickelson metið yfir fæst högg á einum hring á risamóti en átta kylfingar hafa áður leikið hring á þessu risamóti á 63 höggum. Síðast gerði Norður-Írinn Rory McIlroy það á opna breska árið 2010.

Mickelson var grátlega nálægt því að fara hringinn á 62 höggum en hann krækti pútt fyrir fugli á 18. holu. Hefði það farið ofan í hefði Mickelson verið fyrsti maðurinn í sögunni til að spila hring á risamóti á 62 höggum.

Bandaríkjamenn eru í sjö efstu sætunum en Patrick Reed sem kláraði snemma í dag er í öðru til þriðja sæti ásamt Zach Johnson. Báðir eru á fimm höggum undir pari en Johnson á þrjár holur eftir í dag.

Justin Thomas, Steve Stricker, Billy Horschel og Tony Finau eru svo allir á fjórum höggum undir pari líkt og Daninn Sören Kjeldsen og Þjóðverjinn Martin Kaymer.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×