Golf

Mickelson áfram með forystu | Spieth og Watson sluppu í gegnum niðurskurðinn

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Jordan Spieth hefur átt erfitt uppdráttar á Opna breska.
Jordan Spieth hefur átt erfitt uppdráttar á Opna breska. vísir/getty
Phil Mickelson er áfram með forystu eftir annan keppnisdaginn á Opna breska meistaramótinu í golfi.

Mickelson, sem lék frábærlega í gær, fór annan hringinn á 69 höggum, eða tveimur höggum undir pari.

Mickelsen er samtals á 10 höggum undir pari en næstur kemur Svíinn Henrik Stenson sem lék á sex höggum undir pari í dag og er samtals á níu höggum undir pari.

Daninn Sören Kjeldsen og Bandaríkjamaðurinn Keegan Bradley eru jafnir í 3. sæti á sjö höggum undir pari. Bandaríkjamaðurinn Zach Johnson, sem vann Opna breska í fyrra, er í 5. sæti á fimm höggum undir pari.

Gengi efstu manna á heimslistanum hefur verið misjafnt. Ástralinn Jason Day, efsti maður heimslistans, er í 41. sæti á einu höggi yfir pari.

Bandaríkjamaðurinn Dustin Johnson og Norður-Írinn Rory McIlroy, sem eru númer tvö og fjögur á heimslistanum, eru báðir á tveimur höggum yfir pari.

Jordan Spieth, sem er þriðji á heimslistanum, rétt slapp í gegnum niðurskurðinn en hann er á fjórum höggum yfir pari. Sömu sögu er að segja af Bubba Watson sem er í 5. sæti á heimslistanum.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×