Lífið

Michael Phelps handtekinn fyrir ölvunarakstur

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
vísir/Getty
Sundkappinn Michael Phelps var handtekinn fyrir ölvunarakstur í gærkvöldi í Maryland samkvæmt heimildum síðunnar TMZ Sports.

Litlar upplýsingar er að finna í frétt síðunnar sem er í vinnslu.

Þetta er í annað sinn sem sundkappinn er handtekinn fyrir ölvunarakstur en það gerðist síðast árið 2004 þegar hann var nítján ára gamall. Skemmst er frá því að minnast þegar Michael var myndaður með hasspípu árið 2009.

Michael er einn fremsti sundmaður heims og hefur unnið til fjölmargra verðlauna, þar á meðal til átta gullverðlauna á Ólympíuleikunum í Peking árið 2008.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×