Lífið

Michael McIntyre með uppistand í Höllinni í vor

atli Ísleifsson skrifar
Michael McIntyre.
Michael McIntyre. Vísir/AFP
Breski skemmtikrafturinn Michael McIntyre verður með uppistand í Laugardalshöllinni þann 4. maí næstkomandi. Sýningin verður sú fyrsta á nýju uppistandsferðalandi hans, Big World Tour. Almenn miðasala mun hefjast 23. febrúar næstkomandi.

Í tilkynningu frá Senu segir að sýningin Showtime hafi orðið að langstærsta uppistandstúr 2012. Náði McIntyre þar að að slá fyrra met Rihönnu fyrir fjölda miða selda í O2-höllina þar sem um 640 þúsund áhorfendur mættu.

„Næsta sýning hans, Happy & Glorious, fékk einnig frábærar viðtökur og var hún t.a.m. tilnefnd til Billboard Touring Awards þar sem samkeppnin lá milli hans og stórnúmeranna Amy Schumer og Kevin Hart.

McIntyre hefur margoft fengið tilnefningar fyrir framkomu sína, meðal annars hefur hann tvisvar verið tilnefndur til BAFTA verðlauna. Michael hefur alloft farið heim með verðlaunagripi, þar af tvenn British Comedy verðlaun, tvenn Chortle verðlaun og National Television verðlaun. Síðustu ár hefur hann ferðast um allan heim með sýningar sínar við mikinn fögnuð; sýning hans í Jóhennesarborg varð til að mynda stærsta uppistandsýning  Afríku fyrr og síðar og hann vann Time Out verðlaun fyrir sýningu sína í Dubai. 

Nú mætir hann til Íslands með glænýtt efni í tilefni af Big World Tour. Aðeins 2.500 númeruð sæti eru í boði, verðsvæðin er fjögur talsins og miðarnir kosta frá 5.990 kr„ segir í tilkynningunni.

Almenn sala hefst fimmtudaginn 23. febrúar kl. 10 á Tix.is. Póstlistaforsala Senu Live fer fram daginn áður, miðvikudaginn 22. febrúar kl. 10,“ segir í tilkynningunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×