Miami Heat er komið með forskot í rimmunni gegn Indiana Pacers í annarri umferð í úrslitakeppni NBA-deildarinnar.
Miami vann níu stiga sigur í kvöld, 95-86, í fyrsta leik liðanna en sigurinn var ekki auðveldur. Indiana yfir lengi vel en þegar á reyndi stigu leikmenn Miami upp og kláruðu leikinn.
LeBron James fékk afhent verðlaun fyrir að vera verðmætasti leikmaður NBA-deildarinnar fyrir leik og hann hélt upp á það með því að skora 32 stig.
Dwyane Wade einnig frábær og skoraði 29 stig. West og Hibbert skoruðu báðir 17 stig fyrir Indiana.