Erlent

MH17: Röktu slóð Buk-kerfisins til Rússlands

Samúel Karl Ólason skrifar
298 manns létu lífið þegar MH17 var skotin niður.
298 manns létu lífið þegar MH17 var skotin niður. Vísir/AFP
Malasíska farþegaflugvélin MH17 var skotin niður frá yfirráðasvæði aðskilnaðarsinna, sem studdir eru af Rússum, í austurhluta Úkraínu. Þetta er niðurstaða alþjóðlegrar rannsóknarnefnd, sem hefur rannsakað hvaðan og hvernig MH17 var skotin niður þann 17. júlí 2014. Nefndin hefur rakið slóð Buk-loftvarnarkerfis frá Rússlandi til skotsvæðisins og svo aftur til Rússlands degi seinna.

Rannsakendur nefndarinnar ræddu við 200 vitni, skoðuðu rúmlega hálfa milljón myndbanda og mynda og hlustuðu á minnst 150 þúsund hleruð símtöl. Þeir hafa útilokað að flugvélin hafi verið skotin niður úr lofti.

Frá blaðamannafundinum í dag.Vísir/AFP
Rússar og aðskilnaðarsinnar hafa neitað að flugvélin hafi verið skotin niður frá yfirráðasvæði aðskilnaðarsinna. Þann 17. júlí 2014 sögðu aðskilnaðarsinnar frá því á samfélagsmiðlum að þeir hefðu skotið niður flutningsvél Úkraínuhers, eins og þeir höfðu gert nokkrum dögum áður.

Færslunum var þó eytt skömmu seinna.

Sjá einnig: Greina frá því hvaðan MH17 var skotin niður.

Boeing flugvél Malaysian Airlines var á leið til Kuala Lumpur frá Amsterdam þann 17. júlí 2014 þegar hún var skotin niður yfir Úkraínu. Allir um borð, 298, létust samstundis þegar BUK-eldflaug hæfði vélinna.

Rannsóknarnefndin hélt í dag blaðamannafund þar sem farið var yfir sönnunargögn nefndarinnar. Rannsóknarnefndinni er stýrt af Hollendingum. Malasía, Ástralía, Úkraína og Belgía og Holland eru einnig aðilar að nefndinni.  

Rússar hafa lengi þvertekið fyrir alla aðkomu að atvikinu, sem leiddi til hertra viðskiptaþvingana gegn Rússum vegna átakanna í Úkraínu. Varnarmálaráðuneyti Rússlands birti ratjárupplýsingar fyrir tveimur dögum sem þeir segja að sanni að engri eldflaug hafi verið skotið frá yfirráðasvæði aðskilnaðarsinna.

Rannsóknarnefndi sagðist ekki hafa haft tíma til að fara yfir þau gögn. Hins vegar bendir Guardian á að ráðuneytið birti einnig ratsjárupplýsingar fjórum dögum eftir að flugvélin var skotin niður. Á þeim upplýsingum mátti sjá herþotu Úkraínuhers, sem Rússar sögðu að hefði skotið MH17 niður. Sú herþota er ekki lengur á sýnileg og flugleið MH17 er ekki sú sama.

Nefndin tilkynnti að um hundrað manns væru til rannsóknar vegna málsins, en nöfn þeirra eða þjóðerni voru ekki gefin upp vegna rannsóknarhagsmuna.

Símtal frá 16. júlí 2014 á milli tveggja rússneskumælandi manna. Þar ræða þeir um nauðsyn þess að koma Buk-kerfi fyrir. Annað símtal sem tekið var upp þann 2. júní 2015. Hér ræða aðskilnaðarsinnar ræða hvort að svæðið þar sem Buk-kerfinu var komið fyrir hafi verið í höndum aðskilnaðarsinna eða Úkraínuhers.

Tengdar fréttir

Flugskeytið barst frá svæði undir stjórn uppreisnarmanna

Bæði rússneskir ráðamenn og fulltrúar uppreisnarmanna hafna niðurstöðum rannsóknar á árásinni á MH17. Hugsunarleysi að lofthelgin hafi ekki verið lokuð. Rússar fullyrða að Úkraínustjórn beri ábyrgðina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×