Lífið

Meyjan: Taktu áhættu

Það er alveg ótrúlegur kraftur og dugnaður yfir þér fram í miðjan nóvember.
Það er alveg ótrúlegur kraftur og dugnaður yfir þér fram í miðjan nóvember.
Elsku góðhjartaða Meyja. Haustið er þinn tími. Þú skalt nýta þér það að þú ert farin að sjá hvernig þú kemur þér út úr þeim erfiðleikum sem þú hefur áhyggjur af. Þú ert að taka áhættu sem reddast á síðustu stundu.

Það er alveg ótrúlegur kraftur og dugnaður yfir þér fram í miðjan nóvember. Þessi áhætta sem þú tekur mun færa þér frið og ró í hjartað og það sem þú ert að gera er hárrétt. Ekki skipta um skoðun heldur stattu föst á þínu. Það er lykillinn að næstu tveimur mánuðum.

Þegar þú bítur eitthvað í þig þá færðu það sem þarf til að klára málið. Mundu bara að standa með þér.

Þú ert búin að vera svo góð við manneskju sem þarfnast þín og ég sé að þú átt eftir að bjarga málunum hjá henni. Það verða ekki allir jafn ánægðir með þig en so what? Þú þarft að fagna. Það er nefnilega þannig að þegar þú fagnar því góða í lífinu þínu þá færðu meira af því. Þú ert magnari hugsana þinna og ert það sem þú hugsar.

Fjölskyldan er efst baugi og það verður svo mikil ást í kringum þig. Þú ert búin að vera að draga á eftir þér fullan poka af gömlum erfiðleikum en í guðanna bænum troddu þrjóskunni þinni í poka og sýndu alla þá auðmýkt sem þú átt til. Það er lykillinn að sigrinum.

Það er ógnargóð orka yfir þér og sérlega gott að flytja og byrja á nýjum verkefnum því haustið gefur þér nýtt upphaf. Í ástinni má taka áhættu. Það er bara svoleiðis. Það er fengitími hjá þér á haustin elsku Meyja, mundu það!

Mottó: Nú er magnað upphaf og ég tek skrefið.

Frægar Meyjur: Ragna Lóa Stefánsdóttir íþróttakona, Manuela Ósk fyrirsæta, Björk Eiðsdóttir ritstýra, Andrea fatalistamaður, Claudia Schiffer fyrirsæta, Edda Björgvinsdóttir leikkona, Herdís Jóhannesdóttir athafnakona, Beyoncé Knowles söngkona, Gylfi Þór Sigurðsson, Eiður Smári Guðjohnsen, Sigrún Ósk Kristjánsdóttir sjónvarpskona, Annie Mist crossfittari, Logi Pedro Stefánsson, tónlistarmaður.


Tengdar fréttir

Vogin: Allt á sér ástæðu

Elsku kjarkmikla Vog. Það er ekki hægt að segja að allt hafi farið nákvæmlega eins og þú ætlaðir þér.

Sporðdreki: Ekkert getur stoppað þig

Elsku Sporðdreki. Það má líkja þér við fuglinn Fönix. Það er alveg sama hvaða erfiðleikum þú lendir í, þú finnur þér alltaf leið út úr þeim.

Hrútur: Láttu heyrast í þér

Elsku aflmikli Hrúturinn minn. Lífið er í raun auðvelt en það erum við sjálf sem flækjum það.

Krabbinn: Hafðu trú á sjálfum þér

Elsku hressi Krabbinn minn. Það er svo mikill kraftur í kortinu þínu að þú verður að nýta þér hann. Það er eins og þú sért að ganga stigann að takmarki þínu og sjáir skýrt hvað þú vilt.

Steingeit: Ekki stjórnast af áliti annarra

Elsku karaktermikla Steingeit. Það þarf að vera myrkur til þess að stjörnurnar sjáist og þú ert búin að hafa regnbogann sem þitt tilfinningalitróf. Það er svo margt sjaldgæft í lífinu, til dæmis ástin.

Nautið: Segðu já við hinu óvænta

Elsku hjartans Nautið mitt. Ekki deyja áður en þú lifir. Þetta ættu að vera einkunnarorðin þín því þú gætir allt eins farið hálfdautt í gegnum lífið ef þú sprengir ekki þægindarammann utan af þér.

Vatnsberi: Hafðu gaman af því sem þú gerir

Elsku fallegi Vatnsberi. Mundu að þeir sem haga sér of vel skrifa yfirleitt ekki mannkynssöguna! Og árangur þinn felst ekki í því að hafa allt fullkomið heldur því að hafa gaman af því sem þú gerir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×