Sport

Metþáttaka á bikarmóti í listhlaupi í skautum

Arnar Björnsson skrifar
Emilía Rós Ómarsdóttir.
Emilía Rós Ómarsdóttir. mynd/aðsend
83 keppendur eru skráðir til leiks á bikarmóti Skautasambandsins í listhlaupi um helgina og hafa þeir aldrei verið fleiri.  

Mótið byrjar snemma á laugardagsmorguninn, 8 ára og yngri hefja keppni laust fyrir klukkan 8 en keppt er í Skautahöllinni í Laugardag.

Reiknað er með harðri keppni í flestum flokkum og þá sérstaklega í a-flokki unglinga.  Ellefu keppendur eru skráðir til leiks og hafa aldrei verið fleiri.  

Þar er til mikils að vinna því þeir bestu vinna sér sæti í landsliðinu fyrir Norðurlandamótið sem verður í Noregi í febrúar.  

Á meðal keppenda í þessum flokki eru Agnes Dís Brynjarsdóttir og Vala Rún B. Magnúsdóttir sem kepptu á Grand Prix mótaröð alþjóða skautasambandsins í haust.  Mikill kraftur er í starfi skautafélaganna og keppendur á mótinu í Laugardalnum um helgina hafa aldrei verið fleiri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×