Handbolti

Metáhorf á franska landsliðið

Karabatic fagnar marki í úrslitaleiknum.
Karabatic fagnar marki í úrslitaleiknum. vísir/eva björk
Franska handboltalandsliðið fær loksins verðskuldaða athygli í heimalandinu.

Áhorfendur fjölmenntu fyrir framan skjáinn til þess að horfa á undanúrslitin hjá Frökkum sem og úrslitaleikinn.

3,3 milljónir Frakka sáu undanúrslitaleikinn gegn Spánverjum. 14,6 prósent sjónvarpsáhorfenda stilltu inn á leikinn.

Met var svo slegið í úrslitaleiknum er 9,1 milljón fylgdist með Frökkum klára Katar. 43,3 prósent sjónvarpsáhorfenda í Frakklandi var með stillt á leikinn.

Franska landsliðið hefur lengi verið það besta í heiminum og Frakkar virðast vera að kveikja á íþróttinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×