LAUGARDAGUR 25. MAÍ NÝJAST 13:23

Jürgen Klopp, þjálfari Dortmund: Stærsti leikur lífs míns

SPORT

Mesta markaflóðið í meira en hálfa öld

Fréttablaðið Íslenski boltinn 04. júlí 2012 06:00
FH-ingarnir Atli Guðnason, Albert Ingason og Hólmar Örn Rúnarsson fagna hér Danny Thomas í 7-2 sigri á ÍA.
FH-ingarnir Atli Guðnason, Albert Ingason og Hólmar Örn Rúnarsson fagna hér Danny Thomas í 7-2 sigri á ÍA. MYND/GUÐMUNDUR BJARKI HALLDÓRSSON
Óskar Ófeigur Jónsson skrifar:
FH-ingar hafa skorað 21 mark í síðustu fjórum leikjum sínum í Pepsi-deild karla. Lærisveinar Heimis Guðjónssonar unnu 7-2 sigur á Akranesi um síðustu helgi eftir að hafa gert 2-2 jafntefli á heimavelli við Stjörnuna, unnið 4-2 útisigur í Keflavík og 8-0 heimsigur á Fylki í leikjunum á undan. FH-liðið komst þar með í fámennan hóp liða sem bera ábyrgð á mestu markaflóðum íslensku fótboltasögunnar.

Mörg frábær fótboltalið hafa spilað í efstu deild undanfarna áratugi en ekkert þeirra náði að brjóta 20 marka múrinn í fjórum leikjum. Það þarf í raun að fara allar götur til þeirra tíma þegar goðsagnirnar Þórólfur Beck og Ríkharður Jónsson fóru fyrir sínum liðum í Vesturbænum og uppi á Akranesi til að finna annað eins markaflóð og hjá Hafnfirðingum síðustu fjórar vikur.

KR-liðið frá 1960 á metið en auk þess að skora 23 mörk í fjórum leikjum kemst liðið einnig í 3. sætið með 21 mark í fjórum leikjum fyrr sama sumar. Sumarið árið eftir settu KR-ingar einnig sams konar met með því að skora 22 mörk í fjórum leikum en ólíkt metinu frá 1960 þá entist það í aðeins eitt ár.

Þrátt fyrir þetta markaflóð fyrir 52 árum tókst KR-ingum þó ekki að landa titlinum á metárinu 1960. KR-liðinu tókst ekki að skora í 2 af síðustu 3 leikjum sínum. Skagamenn unnu úrslitaleik liðanna 1-0 og fögnuðu titlinum. FH-ingar hafa sýnt styrk sinn í þessum leikjum en það er löng leið fram undan að Íslandsmeistaratitlinum.

Ríkharður Jónsson og félagar í gullaldarliði Skagamanna eiga einnig tvö markaflóð inn á topp fimm en Skagamenn skoruðu 20 mörk í fjögurra leikja törn bæði sumarið 1955 og svo sumarið 1958.

Síðan þá er liðin meira en hálf öld og það hefur verið langt frá því að vera daglegt brauð að lið hafi nálgast inngöngu í 20 marka hópinn.

Tíu marka leikir Skagamanna frá 1973 (10-1 sigur á Blikum) og 1993 (10-1 sigur á Víkingum) eða framlag Valsara til Listahátíðar 1976 (17 mörk í 3 leikjum) voru ekki nóg til að komast í umræddan hóp. Öll tuttugu marka liðin fyrir afrek FH-inga voru lið sem fóru mikinn fyrir meira en hálfri öld.

Það er samt einna athyglisverðast í frammistöðu FH-inga undanfarna 28 daga að ógnunin kemur alls staðar að í FH-liðinu. Þrír af fjórum markahæstu mönnum FH-inga í þessari markatörn spila á miðjunni eða í vörninni og þar á meðal hefur bakvörðurinn Guðjón Árni Antoníusson skorað 4 mörk og lagt upp önnur tvö.

Atli Guðnason er samt í nokkrum sérflokki þegar kemur að sköpun marka FH í síðustu fjórum leikjum. Hann kom með beinum hætti að fjórum mörkum liðsins uppi á Skaga og hefur alls skorað 5 mörk og gefið 5 stoðsendingar í síðustu fjórum leikjum.


xxxxx
xxxx
xxxx
xxxxx xxxx xxxx
Mestu markaflóðin í efstu deild frá 1955 til 2012:
23 - KR 1960 (5-0, 6-0, 5-3, 7-0)
22 - KR 1959 (5-0, 7-0, 3-0, 7-1)
21 - FH 2012(8-0, 4-2, 2-2, 7-2)
21 - KR 1960 (6-0, 5-3, 7-0, 3-5)
20 - ÍA 1955 (8-0, 1-4, 6-1, 5-2)
20 - ÍA 1958 (2-2, 7-1, 5-1, 6-4)
19 - ÍA 1960 (3-5, 4-1, 7-1, 5-1)
19 - ÍA 1973 (10-1, 6-2, 0-1, 3-1)
19 - Valur 1976 (2-0, 6-1, 5-1, 6-0)

18 - ÍA 1959, KR 1961, ÍA 1993 (2)

Deila
Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.
Íslenski boltinn 24. maí 2013 21:06

Aron og Hjörtur sáu um Fjölni

Aron Elís Þrándarson gerði sér lítið fyrir og skoraði þrennu fyrir Víking í kvöld er liðið kjöldró Fjölni, 1-5, í 1. deildinni. Meira
Íslenski boltinn 24. maí 2013 12:23

Ólafur best klæddi þjálfarinn | Þorvaldur neðstur

Sindri Snær Jensson, markvörður og sérfræðingur um tísku, hefur tekið út klæðaburð þjálfaranna í Pepsi-deild karla. Meira
Íslenski boltinn 24. maí 2013 11:30

Kannski vont fyrir meðalmanneskju

Anna Garðarsdóttir reiknar ekki með að geta spilað með liði sínu á ný fyrr en á seinni hluta tímabilsins í Pepsi-deild kvenna. Meira
Íslenski boltinn 24. maí 2013 10:00

Afríka er brandari sem er löngu búinn

Kjartan Atli Kjartansson, leikmaður körfuboltaliðs Stjörnunnar og knattspyrnuliðs Álftaness, segir að leikmenn neðri deilda knattspyrnunnar kvíði því að mæta liði Afríku. Meira
Íslenski boltinn 24. maí 2013 06:45

Byrjar betur en forverarnir

Róbert Örn Óskarsson fékk stóra tækifærið hjá Heimi Guðjónssyni, þjálfara FH, þegar Gunnleifur Gunnleifsson leitaði á ný mið. Róbert er besti leikmaður 4. umferðar Pepsi-deildarinnar að mati Fréttabla... Meira
Íslenski boltinn 24. maí 2013 06:30

Framtíðin liggur í gervigrasvöllum

Ekki er hægt að spila á Akureyrarvelli í bráð frekar en öðrum knattspyrnuvöllum á Norðurlandi. Formaður knattspyrnudeildar KA segir löngu tímabært að gervigrasvæða íslenska knattspyrnuvelli, ekki aðei... Meira
Íslenski boltinn 23. maí 2013 21:14

Haukar og Tindastóll með góða sigra

Haukar unnu góðan sigur á Selfossi, 2-3, en tveir leikir fóru fram í 1. deildinni í kvöld. Meira
Íslenski boltinn 23. maí 2013 20:10

Rætt um að fá Phil Neville til ÍBV

Bradley Simmonds hefur farið ágætlega af stað með ÍBV í Pepsi-deildinni. Þessi 19 ára strákur, sem áður var á mála hjá QPR, er ánægður með lífið á Íslandi. Meira
Íslenski boltinn 23. maí 2013 17:12

Guðjón Heiðar leggur skóna á hilluna

Skagamaðurinn Guðjón Heiðar Sveinsson hefur spilað sinn síðasta leik á ferlinum því þessi vinstri fótar bakvörður hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna. Hann mun því ekki leika meira með Skagaliðinu... Meira
Íslenski boltinn 23. maí 2013 12:39

Íslenski Konninn slær í gegn

"Þetta er stuðningsmannalag Þróttar til heiðurs dyggasta stuðningsmanni félagsins, Konna,“ segir Sólmundur Hólm Sólmundarson, betur þekkur sem Sóli. Meira
Íslenski boltinn 23. maí 2013 12:15

Gaui Þórðar hafnaði erlendu liði í janúar

Guðjón Þórðarson hefur verið án þjálfarastarfs síðan honum var sagt upp störfum hjá Grindavík síðastliðið haust. Meira
Íslenski boltinn 23. maí 2013 09:06

Völlurinn er handónýtur

Knattspyrnuvellir á Norðurlandi koma illa undan vetri og liggja margir undir kalskemmdum, eins og sést greinilega á meðfylgjandi myndum sem Jóhann G. Kristinsson, vallarstjóri Laugardalsvallar, tók á ... Meira
Íslenski boltinn 23. maí 2013 06:45

Vítin til vandræða

Vítaskyttur Pepsi-deildarliðanna hafa aðeins skorað úr tveimur af sjö vítaspyrnum sem dæmdar hafa verið í fyrstu fjórum umferðunum í sumar. Þetta er langversta byrjun vítaskyttna síðan deildin varð tó... Meira
Íslenski boltinn 22. maí 2013 22:30

Þetta víti er stútfullt af stælum

Leikmönnum Pepsi-deildar karla hefur gengið afar illa að nýta vítaspyrnur sínar í sumar og vítin voru eitt af umræðuefnunum í Pepsimörkunum í gær. Meira
Íslenski boltinn 22. maí 2013 22:01

Greta Mjöll: Ég fékk bara eitt stykki hnefa í andlitið

Greta Mjöll Samúelsdóttir, fyrirliði Breiðabliks endaði síðan leikinn á móti Selfossi í kvöld á því að vera borin útaf eftir slæmt höfuðhögg. Breiðablik vann leikinn 4-1 og er með fullt hús eftir fjór... Meira
Íslenski boltinn 22. maí 2013 16:51

Umfjöllun og viðtöl: Breiðablik - Selfoss 4-1 | Blikar áfram á sigurbraut

Breiðablik hélt áfram sigurgöngu sinni í Pepsi-deild kvenna í kvöld þegar liðið vann 4-1 sigur á Selfossi á Kópavogsvellinum. Breiðablik hefur unnið fyrstu fjóra leiki sína í sumar og er á toppnum í d... Meira
Íslenski boltinn 22. maí 2013 21:55

Hrikaleg mistök hjá Birnu Berg | Myndband

Hinn stórefnilegi markvörður FH, Birna Berg Haraldsdóttir, gerði sig seka um skelfileg mistök í leiknum gegn Aftureldingu í kvöld. Meira
Íslenski boltinn 22. maí 2013 17:08

Auðvelt hjá FH og Stjörnunni | Podovac skoraði fjögur mörk

FH vann sinn fyrsta sigur í Pepsi-deild kvenna í kvöld er liðið lagði Aftureldingu. Danka Podovac fór á kostum í liði Stjörnunnar gegn HK/Víkingi og skoraði fjögur mörk. Meira
Íslenski boltinn 22. maí 2013 20:30

Varasamt að ná í 1. deildarkónga

Strákarnir í Pepsimörkunum ræddu muninn á því að spila í 1. deildinni og Pepsi-deildinni í þætti gærkvöldsins. Meira
Íslenski boltinn 22. maí 2013 16:57

Meistararnir misstu niður tveggja marka forskot

Fyrstu tveimur leikjum kvöldsins í Pepsi-deild kvenna er lokið. Jafntefli var í stórleiknum fyrir norðan en ÍBV vann öruggan sigur á Þrótti. Meira
Íslenski boltinn 22. maí 2013 16:45

Víðir skoraði flottasta markið í 3. umferð

Eyjamaðurinn Víðir Þorvarðarson skoraði flottasta markið í 3. umferð Pepsi-deildar karla í fótbolta að mati lesenda Vísis en kosið var á milli fimm fallegustu markanna hér inn á Vísi. Lesendur Vísis f... Meira
Íslenski boltinn 22. maí 2013 14:30

Markaregn fjórðu umferðar

Tólf mörk voru skoruð í fjórðu umferð Pepsi-deildar karla en það má sjá þau öll í meðfylgjandi myndbandi. Meira
Íslenski boltinn 22. maí 2013 09:00

Marksækinn og söngelskur Skagamaður

Hallur Flosason skoraði annað marka ÍA í 2-0 sigri á Fram í gær en ef til vill vita færri að hann er einnig stórefnilegur tónlistarmaður. Meira
Íslenski boltinn 22. maí 2013 06:00

Lærið opnað að aftan

"Hún er með risastóran skurð eftir að lærið var opnað að aftan," sagði landsliðsþjálfarinn Sigurður Ragnar Eyjólfsson um meiðsli Margrétar Láru Viðarsdóttur. Meira
Íslenski boltinn 21. maí 2013 15:31

Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: Breiðablik - FH 0-1

Róbert Örn Óskarsson var hetja FH-inga í 1-0 sigri á Blikum í Pepsi deild karla í kvöld. Blikar fengu víti á 89. mínútu og gátu jafnað leikinn en Róbert varði vítið og tryggði gestunum stigin þrjú. Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið
  • Skoðun

Mest lesið

Forsíða / Sport / Fótbolti / Íslenski boltinn / Mesta markaflóðið í meira en hálfa öld
365 miðlar ehf.
Skaftahlíð 24
105 Reykjavík
sími 512 5000