Enski boltinn

Messi útilokar að fara í ensku úrvalsdeildina

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Lionel Messi hress með fimmta gullboltann sinn í gær.
Lionel Messi hress með fimmta gullboltann sinn í gær. vísir/getty
Lionel Messi ætlar ekki að spila í ensku úrvalsdeildinni áður en ferlinum lýkur. Hann mun klára ferilinn hjá Barcelona.

Messi var í gær kjörinn besti fótboltamaður heims í fimmta sinn, en ensk og spænsk blöð hafa haldið því áður fram að Messi gæti yfirgefið Barcelona og spilað á Englandi.

Manchester City og Chelsea hafa verið orðuð við Argentínumanninn á undanförnum misserum, en City er sagt hafa gengið hvað harðast á eftir Messi.

„Ég hef alltaf sagt að ég get ekki yfirgefið Barcelona. Það er alltaf mitt svar. Ég vil klára ferilinn heima hjá mér og Barcelona er mitt heimili,“ sagði Messi við blaðamenn í gær.

„Fótboltinn breytist alltaf svo mikið. Fyrir ári síðan vorum við gagnrýndir harkalega en enduðum svo á að vinna næstum allt. Ég ætla mér að klára ferilinn þar sem hann byrjaði, í Barcelona,“ sagði Lionel Messi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×