Fótbolti

Messi skoraði fallegasta markið á síðustu leiktíð | Myndband

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Lionel Messi fagnar fallegasta markinu á tímabilinu 2014-15.
Lionel Messi fagnar fallegasta markinu á tímabilinu 2014-15. Vísir/AFP
Lionel Messi landaði sínum fyrstu verðlaunum, að mögulega mörgum á næstunni, þegar mark Argentínumannsins var kosið það fallegasta í keppnum evrópska knattspyrnusambandsins á tímabilinu 2014-15.

Knattspyrnusamband Evrópu, UEFA, stóð fyrir kjörinu inn á heimasíðu sinni og þar gat fólk valið á milli tíu marka sem voru skoruð í keppnum sambandsins á síðustu leiktíð. Meistaradeildin átti flesta fulltrúa en ekki alla.

Fallegasta markið skoraði Lionel Messi í undanúrslitum Meistaradeildarinnar á móti Barcelona. Hann fékk boltann frá Króatanum Ivan Rakitić, stakk sér inn í teiginn og skildi þýska landsliðsmanninn Jérome Boateng eftir á rassinum áður en hann lyfti boltanum með hægri fæti yfir þýska landsliðsmarkvörðinn Manuel Neuer.

Messi kom Barcelona þarna í 2-0 á 80. mínútu fyrri leiks liðanna en hann hafði sjálfur skorað fyrsta mark leiksins þremur mínútum áður. Barcelona vann leikinn á endanum 3-0 og var í kjörstöðu fyrir seinni leikinn sem fór 3-2 fyrir Bayern München.

Það er hægt að sjá öll mörk Barcelona í leiknum í myndbandinu hér fyrir neðan en fallegasta mark tímabilsins kemur eftir rétt rúmar 30 sekúndur.

Lionel Messi hafði betur en Cristiano Ronaldo. Mark Messi fékk 39 prósent atkvæða á móti 24 prósentum atkvæða sem mark Ronaldo fékk. Það er hægt að sjá öll mörkin á kosningarsíðu UEFA.

Fallegustu mörk Meistaradeildarinnar:

1. Lionel Messi, Barcelona á móti Bayern München - 39 prósent

2. Cristiano Ronaldo, Real Madrid á móti Liverpool - 24 prósent

3. Aaron Ramsey, Arsenal á móti Galatasaray - 9 prósent

4. Neymar, Barcelona á móti Paris Saint-Germain - 7 prósent

5. Erik Lamela, Tottenham á móti Asteras Tripoli - 5 prósent

6. Vasyl Kobin, Legia Warszawa á móti Metalist Kharkiv - 4 prósent

7. Kevin De Bruyne, Wolfsburg á móti Lille - 4 prósent

8. Vitorino Antunes, Dynamo Kiev á móti Everton - 3 prósent

9. Robbie Muirhead, Skotlandi U19 á móti Noregi U19 - 3 prósent

10. Aremu Toloba, Wales U17 kvenna á móti Belgíu U17 kvenna - 2 prósent

´



Fleiri fréttir

Sjá meira


×