Fótbolti

Messi skar Börsunga úr snörunni

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Messi bjargaði Barcelona í kvöld.
Messi bjargaði Barcelona í kvöld. vísir/getty
Barcelona var stálheppið að vinna Leganés þegar liðin mættust í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld. Lokatölur 2-1, Börsungum í vil.

Lionel Messi skoraði sigurmark Barcelona úr vítaspyrnu á lokamínútunni.

Með sigrinum minnkuðu Börsungar forskot Real Madrid á toppnum niður í eitt stig. Madrídingar eiga þó tvo leiki til góða.

Messi kom Barcelona yfir strax á 4. mínútu eftir sendingu frá Luis Suárez.

Unai López jafnaði metin fyrir nýliðana á 71. mínútu og Leganés virtist ætla að fara heim með eitt stig.

En Messi var á öðru máli og Argentínumaðurinn tryggði Barcelona sigurinn með sínu 19 marki í spænsku deildinni í vetur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×