Lionel Messi fagnar í gær.
MYND/NORDIC PHOTOS/GETTY
Óskar Ófeigur Jónsson skrifar:
Lionel Messi skoraði tvö mörk í 4-1 sigri Barcelona á Real Zaragoza í spænsku úrvalsdeildinni í gærkvöldi og er þar með búinn að skora 60 mörk fyrir Barca á tímabilinu. Messi er fyrsti knattspyrnumaðurinn í næstum því 40 ár sem nær að brjóta 60 marka múrinn.
Síðastur til að skora 60 mörk fyrir sitt lið á einu tímabili var Þjóðverjinn Gerd Müller sem afrekaði það með Bayern München tímabilið 1972-73. Müller skoraði reyndar 67 mörk það tímabil en Messi á enn eftir að minnsta kosti tíu leiki til að bæta það met.
Lionel Messi hefur nú skorað 60 mörk í 50 leikjum með Börsungum á leiktíðinni, 38 mörk í 30 leikjum í deildinni, 14 mörk í 9 leikjum í Meistaradeildinni, 1 mark í 1 leik í Ofurbikar Evrópu, 2 mörk í 6 leikjum í spænska bikarnum, 3 mörk í 2 leikjum í spænska ofurbikarnum og 2 mörk í 2 leikjum í Heimsmeistarakeppni félagsliða.
Lionel Messi hefur skorað 11 mörkum meira en Cristiano Ronaldo sem er marki á eftir honum í spænsku deildinni. Ronaldo er líklegur til að komast líka í 60 marka hópinn áður en tímabilið er á enda en í honum eru auk Messi og Müller; Ungverjinn Fernc Deak, Hollendingurinn Henk Groot og Englendingurinn Dixie Dean.
Fernc Deak skoraði 66 mörk fyrir ungverska liðið Szentlorinc 1945-46, Henk Groot skoraði 64 mörk fyrir Ajax Amsterdam 1960-61 ogDixie Dean skoraði 63 mörk fyrir Everton 1927-28.
Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.
Jose Mourinho mun láta af störfum sem þjálfari Real Madrid í lok leiktíðar. Florentino Perez, forseti félagsins, greindi frá þessu á blaðamannafundi sem boðað var til í Madríd í dag.
Meira
Barcelona á enn möguleika á að jafna stigametið á Spáni eftir 2-1 endurkomusigur á útivelli á móti Atletico Madrid í spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld. Brcelona var búið að tryggja sér titili...
Meira
Barcelona varð í kvöld Spánarmeistari í knattspyrnu. Liðið þurfti þó ekki að spila til þess að landa titlinum. Real Madrid gerði í kvöld jafntefli, 1-1, gegn Espanyol og Real á því ekki lengur mögulei...
Meira
Spænskir fjölmiðlar halda því fram í dag að samband Jose Mourinho, þjálfara Real Madrid, og Cristiano Ronaldo, leikmanns félagsins, sé við suðupunkt.
Meira
Líf Lionel Messi kemur brátt á hvíta tjaldið því kvikmyndaframleiðandi í Hollywood hefur keypt réttinn á því að gera mynd um besta knattspyrnumann heims.
Meira
Cristiano Ronaldo skoraði eitt mark, lagði upp tvö, klikkaði á víti og fiskaði tvo menn útaf í 6-2 sigri Real Madrid á Malaga í spænsku úrvalsdeildinni.
Meira
Jose Mourinho, þjálfari Real Madrid, er allt annað en sáttur við leikmann sinn, Pepe, en varnarmaðurinn sagði að Mourinho ætti að bera meiri virðingu fyrir markverðinum Iker Casillas.
Meira
Tito Vilanova, þjálfari Barcelona, tók þá erfiðu ákvörðun í gær að setja Lionel Messi á bekkinn í leiknum gegn Bayern München. Messi lék með Barcelona um síðustu helgi og bjuggust flestir við honum í ...
Meira
Portúgalinn Cristiano Ronaldo er mikið í fréttunum í dag en slúðurblöð héldu því fram í morgun að hann hefði haldið fram hjá með brasilískri fyrirsætu tveim dögum fyrir leikinn gegn Dortmund í Meistar...
Meira
Tito Vilanova, þjálfari Barcelona, segir að það sé ekkert óeðlilegt við það að liðið sé að mörgu leyti háð Lionel Messi. Hann segir að öll lið myndu gera það ef þau ættu slíkan leikmann.
Meira
Herferð Framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins og knattspyrnuliðs Barcelona hefur orðið til þess að 60 þúsund manns hafa lagt sígarettuna á hilluna á þremur mánuðum.
Meira