Fótbolti

Messi og Neymar með tvö mörk hvor í stórsigri Barcelona

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Pique fagnar marki sínu.
Pique fagnar marki sínu. vísir/getty
Barcelona átti ekki í miklum vandræðum með að vinna Elche á útivelli í spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.

Lokatölur 0-6, Börsungum í vil sem jöfnuðu þar með Real Madrid að stigum á toppi deildarinnar. Real Madrid á þó leik til góða.

Gerard Piqué skoraði eina mark fyrri hálfleiks en í seinni hálfleik brast stíflan.

Lionel Messi skoraði annað mark Barcelona á 55. mínútu úr vítaspyrnu og Neymar bætti svo tveimur mörkum við með tveggja mínútna millibili.

Messi skoraði sitt annað mark á 88. mínútu og tveimur mínútum seinna skoraði Pedro sjötta mark Börsunga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×