Fótbolti

Messi og allt landslið Argentínu neitaði að tjá sig við fjölmiðla

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Lionel Messi í leiknum í nótt.
Lionel Messi í leiknum í nótt. Vísir/Getty
Lionel Messi tilkynnti eftir sigur 3-0 Argentínu á Kólumbíu í undankeppni HM 2018 í nótt að liðið myndi ekki ræða við fjölmiðla.

Ástæðan eru ásakanir sem blaðamaður kom með gagnvart Ezequiel Lavezzi fyrir leikinn. Lavezzi var ekki í leikmannahópi Argentínu í nótt.

Umræddur blaðamaður, Gabriel Anello, velti því upp á Twitter-síðu sinni hvort að Lavezzi væri ekki í landsliðshópnum vegna þess að hann hefði verið uppvís að því að neyta kannabisefna í æfingabúðum liðsins fyrir leik.



 



Lavezzi brást illur við þessum ásökunum og hét þess að leita réttar síns vegna skrifa Anello.





Allir 23 liðsfélagar Lavezzi tóku sér stöðu fyrir blaðamenn eftir leikinn í nótt þar sem Lionel Messi tilkynnti að enginn þeirra myndi ræða við fjölmiðla vegna umræddra skrifa.

„Ásakarirnar gagnvart Lavezzi voru miklar. Við hörmum þetta en höfðum enga aðra valkosti,“ sagði Messi og bætti við að það væri eitt að gagnrýna frammistöðu leikmanna inni á vellinum en annað að blanda sér í einkalíf manna.

„Við vildum segja þetta fyrir framan alla í stað þess að gefa út yfirlýsingu,“ sagði hann enn fremur en ræðuna má sjá í heild sinni hér fyrir neðan.



Argentína er í fimmta sæti Suður-Ameríkuriðilsins í undankeppni HM 2018 með nítján stig, einu á eftir Ekvador og Síle. Brasilía, sem vann 2-0 sigur á Perú í nótt með mörkum Gabriel Jesus og Renato Augusto, er efst með 27 stig.

Messi skoraði fyrsta mark Argentínumanna í nótt en Lucas Prato og Angel Di Maria hin mörk Argentínu í leiknum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×