Fótbolti

Messi með marka- og stoðsendingatvennu í stórsigri Barcelona

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Messi horfir til himins eftir að hafa skorað fyrsta mark Barcelona.
Messi horfir til himins eftir að hafa skorað fyrsta mark Barcelona. Vísir/Getty
Lionel Messi skoraði tvö mörk og lagði upp tvö til viðbótar þegar Barcelona rústaði Celta Vigo, 5-0, í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld.

Með sigrinum endurheimti Barcelona toppsætið í deildinni. Börsungar eru núna einu stigi á undan Real Madrid sem á þó leik til góða.

Þetta var sjötti sigur Barcelona í röð en markatalan í þessum sex leikjum er 22-3.

Messi kom Barcelona yfir á 24. mínútu. Fimm mínútum fyrir hálfleik fann hann svo Neymar sem vippaði boltanum yfir Sergio Álvarez í marki Celta.

Ivan Rakitic kom Barcelona í 3-0 á 57. mínútu og fjórum mínútum síðar bætti franski varnarmaðurinn Samuel Umtiti fjórða markinu við eftir sendingu frá Messi.

Argentínski snillingurinn átti svo síðasta orðið þegar hann skoraði sitt annað mark og fimmta mark Barcelona á 64. mínútu.

Messi er markahæstur í spænsku deildinni með 23 mörk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×