Fótbolti

Messi frá í þrjár vikur

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Messi haltrar af velli í kvöld.
Messi haltrar af velli í kvöld. vísir/getty
Barcelona varð fyrir áfalli í leiknum gegn Atletico Madrid í kvöld er Lionel Messi haltraði af velli í síðari hálfleik.

Barcelona hefur nú staðfest að Messi sé meiddur á læri og verði að öllum líkindum frá í um þrjár vikur.

Hann mun því missa af leiknum gegn Sporting Gijon um næstu helgi og Meistaradeildarleiknum gegn Mönchengladbach um næstu helgi. Svo bíða leikir í deildinni gegn Celta og Deportivo sem hann missir klárlega af líka.

Hópurinn er þó breiður þó svo enginn komi í stað Lionel Messi.


Tengdar fréttir

Messi meiddist í stórleiknum

Barcelona tók á móti Atletico Madrid í kvöld. Þetta var átakaleikur sem endaði með jafntefli, 1-1.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×