Enski boltinn

Messan: Özil átti smá stund með sjálfum sér | Myndband

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
„Loksins fann Arsenal gírinn og þeirra stærsta stjarna datt svo sannarlega í gírinn,“ sagði Hjörvar Hafliðason um frammistöðu Þjóðverjans Mesuts Özil í leik Arsenal og Aston Villa í Messunni í gær.

Eftir þrjú jafntefli í röð tóku Arsenal-menn aftur við sér og unnu öruggan 0-3 sigur á taplausu liði Aston Villa á útivelli. Özil, sem hefur fengið mikla gagnrýni fyrir frammistöðu sína að undanförnu, vaknaði til lífsins; skoraði mark og lagði annað upp.

„Það er engu líkara en að Özil hafi átt smá stund með sjálfum sér eftir leikinn gegn Dortmund í Meistaradeildinni, horft í spegil og hugsað með sér: Jæja, núna ríf ég þetta í gang. Það var allt annað að sjá strákinn á laugardaginn,“ bætti Hjörvar við.

Umræðuna um Arsenal og Özil má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.


Tengdar fréttir

Welbeck: Góð frammistaða hjá liðinu

Danny Welbeck skoraði sitt fyrsta mark fyrir Arsenal í 3-0 sigri þeirra á Aston Villa í dag. Welbeck var skiljanlega ánægður í leikslok.

Wenger kemur Özil til varnar

Mesut Özil hefur byrjað tímabilið illa, en þrátt fyrir það stendur Arsene Wenger þétt við bakið á sínum manni.

Ég er gagnrýndur meira en aðrir

Mesut Özil, miðjumaður Arsenal, hefur mátt þola mikla gagnrýni síðan hann gekk í raðir félagsins en hann svaraði þeim gagnrýnisröddum um helgina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×