Enski boltinn

Messan: Krísa Tottenham ekki búin þrátt fyrir stórsigur

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Þrátt fyrir að hafa unnið Stoke sannfærandi um helgina þá er krísan ekki yfirstaðin hjá Tottenham að mati strákanna í Messunni.

„Slakaðu á Rikki, þeir voru að vinna Stoke City sem er eitt allra lélegasta liðið og andlausasta liðið í enska boltanum,“ sagði Hjörvar Hafliðason sem var annar gesta Ríkharðs Óskars Guðnasonar í gær.

„Það segir mér ekki að krísan sé búin hjá Tottenham. Þeir eru bara búnir að vera slakir og lenda í vandræðum með meiðsli.“

Hjörvar vildi ekki viðurkenna að hafa fundist Tottenham góðir í leiknum, en þeir unnu 5-1 sigur á Wembley.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×