Enski boltinn

Messan: Boltasegullinn Kaboul

Hjörvar Hafliðason, sérfræðingur Messunnar, hreifst af frammistöðu Younes Kaboul, fyrirliða Tottenham, í leiknum gegn Arsenal um síðustu helgi.

„Það var einn leikmaður sem stóð algjörlega upp úr: Younes Kaboul, sem við höfum oft ekki hrósað sérstaklega mikið. En hann var hvað eftir annað í mynd í þessum leik - hann var að bjarga öllu.

„Hann var alltaf fyrir framan markið sitt að verjast og hirða upp fráköstin,“ sagði Hjörvar.

„Hann var reyndar eins og boltasegull,“ bætti Guðmundur Benediktsson við.

Innslagið í heild sinni má sjá hér að ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×