Fótbolti

Mertens sökkti Rómverjum með tveimur mörkum

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Mertens skorar annað mark sitt.
Mertens skorar annað mark sitt. vísir/getty
Dries Mertens skoraði bæði mörk Napoli þegar liðið vann 1-2 sigur á Roma í ítölsku úrvalsdeildinni í dag.

Napoli er nú aðeins tveimur stigum á eftir Roma í 2. sætinu. Juventus er sem fyrr á toppnum með 66 stig, sjö stigum meira en Roma og níu stigum meira en Napoli.

Mertens, sem hefur slegið í gegn sem framherji í vetur, kom Napoli yfir á 26. mínútu. Hann bætti svo öðru marki við eftir fimm mínútna leik í seinni hálfleik.

Mertens er nú kominn með 18 mörk í ítölsku deildinni í vetur en aðeins Andrea Belotti (Torino), Edin Dzeko (Roma) og Gonzalo Higuaín (Juventus) hafa skorað meira, eða 19 mörk.

Kevin Strootman minnkaði muninn fyrir Roma á 89. mínútu en nær komust heimamenn ekki. Lokatölur 1-2, Napoli í vil.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×