Heilsa

Merki um vökvaskort á æfingu

Rikka skrifar
vísir/getty
Vatns- og vökvadrykkja skiptir höfuðmáli hvort sem er á æfingum eða í daglegu lífi. Talið er að um meðalmanneskja þurfi að drekka um tvo til þrjá lítra á dag en fer það eftir aðstæðum hverju sinni svo sem veðri og vindum. Eins og með allt annað þá er allt gott í hófi og getur of mikil drykkja á vökva verið hreinlega skaðleg líkamanum. Örlítil þorstatilfinning á líkamsræktaræfingu getur verið fyrsta merki um að líkamanum vanti vökva en það eru aðrar vísbendingar sem geta gefið til kynna að vökvi sé af skornum skammti í kerfinu.

Þreyta

Vökvaskortur getur komið fram í þreytu í upphafi æfinga eða hlaupa, stundum er þetta þreyta eftir langan vinnudag en stundum má kenna vökvaskorti um. Gættu þess að drekka jafnt og þétt yfir daginn og vel á eftir æfingum.

Krampi

Ef þú drekkur ekki hæfilega mikið af vökva getur það komið fram sem krampi í vöðvum. Krampi getur líka stafað af skorti á steinefnum eins og kalíum og magnesíum. Banani gæti verið góður kostur fyrir æfingar en hann inniheldur hvoru tveggja.

Hærri púls

Púlsmælir er nauðsynlegur fyrir þá sem vilja fylgjast vel með líkamanum á æfingum. Notir þú púlsmæli reglulega og tekur eftir því að púlsinn er að hækka þrátt fyrir svipaðar æfingar og áður getur ástæðan verið vatnsskortur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×