Innlent

Merki um þenslu undir Bárðarbungaröskjunni

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
GPS-mælingar sýna merki um þenslu á svæðinu kringum Bárðarbungu.
GPS-mælingar sýna merki um þenslu á svæðinu kringum Bárðarbungu. Vísir/Vilhelm
Merki er um þenslu á svæðinu í kringum Bárðarbungu sem benda til kvikusöfnunar undir Bárðarbunguöskjunni.

Náttúruváreftirlitshópur Veðurstofu Íslands fundaði í morgun og ræddi nýjustu mælingar við Bárðarbungu en að undanförnu hefur mælst aukin tíðni jarðskjálfta við Bárðarbungu.

GPS-mælingar sýna merki um þenslu á svæðinu kringum Bárðarbungu sem benda til kvikusöfnunar. Þessi merki hafa orðið greinilegri nú á haustmánuðum.

Algengt er að þenslumerki mælist í nánd við eldstöðvar eftir eldgos. T.a.m. hafa eldfjöllin Eyjafjallajökull, Grímsvötn og Hekla sýnt slíka hegðun. Samfara þenslunni hefur skjálftum í öskjunni af stærð 2,5-3,8 fjölgað en skjálftavirknin hefur að öðru leiti lítið breyst.

Bárðarbunga er vöktuð allan sólarhringinn á Veðurstofu Íslands og engin augljós merki sjást nú um yfirvofandi gos. Vísindaráð Almannavarna hittist á næstunni og mun ræða stöðu Bárðarbungu.


Tengdar fréttir

Funda vegna skjálfta í Bárðarbungu

Aukin jarðskjálftavirkni í og við Bárðarbungu á síðastliðnum tveimur vikum verður rædd á fundi vísindamannaráðs Almannavarna í dag. Þar bera vísindamenn saman bækur sínar þar sem hugsanlegar ástæður hennar verða ræddar.

Askja Bárðarbungu byrjuð að rísa á ný?

Haraldur Sigurðsson eldfjallafræðingur, sem reyndist ótrúlega sannspár um goslok í Holuhrauni, vekur athygli á því á bloggsíðu sinni að merki kunni nú að vera farin að sjást um að askja Bárðarbungu sé byrjuð að rísa aftur.

Einn stærsti heiti pottur í heimi

Risavaxinn pottur í Holuhrauni dregur að sér ferðamenn sem vilja baða sig í heitu jökulvatninu sem rennur undan hraunjaðrinum. Þeir þurfa þó að varast hitasveiflur í vatninu sem hefur farið upp í 50 gráður.

Eldgosinu í Holuhrauni er lokið

Vísindamannaráð almannavarna fundaði í morgun vegna umbrotanna í Bárðarbungu og var niðurstaða fundarins að eldgosinu, sem hófst 31. ágúst 2014 í Holuhrauni væri lokið.

Ísland lifandi tilraunastofa í þrjú ár

Undanfarin þrjú ár hefur Evrópusambandið styrkt víðtækar jarðvísindarannsóknir á Íslandi um tæpar 850 milljónir króna. Yfir hundrað vísindamenn frá tíu löndum koma að verkefninu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×