Erlent

Merkel vill svör frá Pútín

Angela Merkel Þýskalandskanslari krefst þess að Vladimír Pútín Rússlandsforseti útskýri fyrir henni ásakanir á hendur Rússum þess efnis að þeir hafi gert innrás í suðausturhluta Úkraínu.

Úkraínsk stjórnvöld fullyrða að rússneskir hermenn hafi farið yfir landamæri ríkjanna og taki nú þátt í árásum aðskilnaðarsinna gegn stjórnarhernum.

Nú er barist hart nálægt hafnarborginni Mariupol. Bandaríkjamenn segja að þá gruni að Rússar taki þátt í aðgerðum uppreisnarmanna en Rússar neita því eins og þeir hafa raunar gert frá því átökin í austurhluta Úkraínu hófust.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×