Formúla 1

Mercedesmenn fljótastir á föstudegi og Chilton mun keppa

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Mercedesmenn hafa toppað ófáar æfingarnar þetta tímabilið, tvær í viðbót bættust við í dag.
Mercedesmenn hafa toppað ófáar æfingarnar þetta tímabilið, tvær í viðbót bættust við í dag. Vísir/Getty
Nico Rosberg á Mercedes var fljótastur á fyrri æfingu dagsins fyrir belgíska kappaksturinn sem fram fer um helgina. Liðsfélagi hans, Lewis Hamilton var fljótastur á seinni æfingunni á Spa brautinni. Max Chilton hefur endurheimt sæti sitt hjá Marussia.

Fyrri æfingin var tíðinda lítil. Rosberg varð fljótastur og Hamilton annar, þriðji varð Fernando Alonso á Ferrari. Hraði Alonso kemur á óvart en Spa brautin er mjög hröð. Ferrari bíllinn er það hins vegar ekki.

Jenson Button á McLaren varð fjórði, Kimi Raikkonen á Ferrari fimmti og Sergio Perez á Force India sjötti.

Williams tókst ekki að sýna styrk sinn á æfingunni, Valtteri Bottas varð tíundi og Felipe Massa varð fimmtándi.

Nýji maðurinn hjá Caterham, André Lotterer, varð fljótari en Marcus Ericsson. Hjá Marussia var Jules Bianchi hins vegar fljótari en Alexander Rossi sem ekur fyrir Max Chilton um helgina.

Seinni æfingin hófst með því að Pastor Maldonado snéri Lotus bíl sínum á varnarvegg. Rauðum flöggum var þá veifað og æfingin tafðist. Esteban Gutierrez snéri Sauber svo bíl sínum og aftur var rauðum flöggum veifað.

Þegar æfingin hófst á ný gat enginn ógnaði tíma Hamilton. Rosberg komst næst en var þó rúmlega 0,6 sekúndum á eftir Hamilton.

Alonso varð aftur þriðji en Massa á Williams varð fjórði og Bottas á Williams varð sjötti. Button á McLaren varð fimmti á milli Williams bílanna.

Max Chilton hefur fengið sæti sitt aftur hjá Marussia eftir að hann bauðst til að stíga til hliðar til að hjálpa liðinu. Hann verður að standast álagið, það er greinilegt að Marussia veigrar sér ekki við að sparka honum ef hann stendur sig ekki.


Tengdar fréttir

Bílskúrinn: Horfur á næsta tímabili

Mörg lið eru farin að huga að uppstillingum ökumanna fyrir næsta tímabil. Hver verður hvar, hver er samningsbundinn hverjum og ætlar einhver að hætta?

Horner: Margar ástæður fyrir erfiðleikum Vettel

Liðsstjóri Red Bull liðsins í Formúlu 1, Christian Horner segir margar þætti valda Vettel erfiðleikum í ár. Þar á meðal sé staðreyndin að Sebastian Vettel er ekki að berjast um heimsmeistaratitilinn.

Marussia setur Chilton á bekkinn

Marussia liðið í Formúlu 1 hefur ákveðið að Alexander Rossi aki fyrir liðið í belgíska kappakstrinum í stað Max Chilton. Samningaviðræður á milli Marussia og Chilton virðast hafa strandað.

Massa: Flott að enda framar en Ferrari

Felipe Massa kveðst vongóður að Williams liðið nái að skáka hans gamla liði Ferrari í stigakeppni bílasmiða. Hann segir að það væri mjög jákvætt fyrir Williams.

Caterham skiptir Kobayashi út

Caterham liðið staðfesti í dag að André Lotterer muni aka í stað Kamui Kobayashi alla belgísku keppnishelgina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×