Formúla 1

Mercedes í sérflokki á föstudagsæfingum

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Lewis Hamilton var fljótastur í dag á Silfur örinni.
Lewis Hamilton var fljótastur í dag á Silfur örinni. Vísir/Getty
Lewis Hamilton á Mercedes var fljótastur á báðum æfingum dagsins. Liðsfélagi hans, Nico Rosberg varð annar á báðum æfingum. Bilið milli þeirra var nánast ekkert á seinni æfingunni.

Fyrri æfing dagsins var Mercedes liðsins, Hamilton var hálfri sekúndu fljótari en Rosberg. Sebastian Vettel varð þriðji á Ferrari rúmlega sekúndu á eftir Rosberg.

Mercedes setti ný uppfærðar vélar í báða bíla sína. Mercedes hefur þá notað alla uppfærsluskammta sína. Sagan segir að miklar nýjungar sé að finna í vélinni. Þróunin fór að miklu leyti í samstarfi við eldsneytisbirgja liðsins, uppfærslan hefur líklegast eitthvað með eldsneytisnýtingu að gera. Hugmyndin er auðvitað mikið leyndarmál. Önnur lið sem nota Mercedes vélar hafa ekki fengið uppfærðar vélar. Það mun þó gerast kannski fyrir næstu keppni.

McLaren mun væntanlega nota nýjar vélar um helgina og færast aftur um 10 sæti á ráslínu vegna þess. Liðið vill nýta tækifærið og taka vélarnar til notkunar á braut eins og Monza. Á Monza skiptir miklu máli að hafa mikið afl, eitthvað sem Honda vélin er ekki að skila McLaren liðinu.

Force India byrjaði helgina á Ítalíu vel. Nico Hulkenberg varð fjórði, rétt tæpum tveim sekúndum á eftir Hamilton. Sergio Perez varð fimmti rétt rúmum tveimur sekúndum á eftir Hamilton.

Nico Hulkenberg var hress og hraður á Force India bílnum í dag.Vísir/getty
Vettel varð einnig þriðji á seinni æfingunni. Force India fylgdi honum svo fast á eftir. Svo fast að Perez var á sama tíma og Vettel, Hulkenberg var svo þremur tíundu á eftir þeim.

Red Bull átti erfitt á seinni æfingunni. Daniel Ricciardo varð þrettándi og Daniil Kvyat varð tuttugasti. Báðir Red Bull bílarnir munu sæta refsingum á ráslínu og því tilgangslaust hjá þeim að undirbúa tímatökuna, þeir einbeittu sér að keppnishraða í staðinn sem er minni en tímatökuhraðinn.

Það er ávallt erfitt að lesa of mikið í niðurstöðu æfinga. Eldsneytismagn og uppstilling bíla eru svo breytileg að nánast ómögulegt er að segja til um stöðu ökumanna. Eitt er þó víst að Mercedes er í sérflokki.

Bein útsending frá tímatökunni á Monza hefst klukkan 11:50 á Stöð 2 Sport á morgun. Keppnin verður svo í beinni frá klukkan 11:30 á Stöð 2 Sport á sunnudag.


Tengdar fréttir

Rosberg fljótastur á föstudagsæfingum

Nico Rosberg á Mercedes var fljótastur á báðum æfingum dagsins, hann byrjaði illa á fyrri æfingunni. Seinni æfing hans endaði skyndilega þegar dekk sprakk á mikilli ferð.

Renault tekur yfir Lotus í næstu viku

Renault mun klára að taka yfir Lotus liðið í Formúlu 1 í næstu viku. Franski bílaframleiðandinn verður þá orðinn liðseigandi aftur í Formúlu 1.

Vettel: Óásættanlegt að dekkin springi

Sebastian Vettel ökumaður Ferrari liðsins var æfur í garð dekkjaframleiðandans Pirelli eftir að dekk sprakk a bíl hans á rúmlega 300 km/klst á Spa brautinni í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×