Formúla 1

Mercedes fljótastir á föstudagsæfingum

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Nico Rosberg á brautinni í Sochi, Rússlandi.
Nico Rosberg á brautinni í Sochi, Rússlandi. Vísir/Getty
Nico Rosberg var fljótastur á fyrri æfingu dagsins fyrir Formúlu 1 keppni helgarinnar í Rússlandi, liðsfélagi hans hjá Mercedes Lewis Hamilton var fljótastur á seinni æfingu dagsins.

Mercedes voru fljótastir í dag en Red Bull stal senunni. Daniel Ricciardo fór út á brautina með framrúðu á bílnum sínum. Framrúðan er önnur útfærlsa af höfuðvörninni. Ferrari hafði áður prófað geislabaugs útfærslu. Sebastian Vettel á Ferrari lenit í vandræðum á seinni æfingu dagsins, rafkerfið í Ferrari bílnum bilaði.

Daniel Ricciardo með framrúðuna á bílnum.Vísir/Getty
Þróunarökumaður Renault, Rússinn Sergey Sirotkin tók sæti Kevin Magnussen á fyrri æfingunni. Hann endaði fimm sætum ofar en Jolyon Palmer hjá Renault.

Margir áttu erfitt með að fóta sig á brautinni, gripið virtist ekki mikið. Beygja tvö var sérstaklega erfið.

Hamilton varð annar á fyrri æfingunni en fljótastur á þeirri síðari. Vettel var annar á æfingunni þegar hann missti afl. Rosberg varð þriðji á seinni æfingunni.

Aftur olli beygja tvö vandræðum. Ökumenn voru að glíma við skítuga braut. Ástæðan er einkum sú að brautin er lítið notuð utan þeirrar helgar sem Formúla 1 kemur til Rússlands.

Bein útsending frá tímatökunni hefst klukkan 11:50 á Stöð 2 Sport. Bein útsending frá keppninni hefst svo klukkan 11:30 á sunnudag á Stöð 2 Sport.

Hér fyrir neðan má sjá úrslit æfinganna á gagnvirku brautarkorti.


Tengdar fréttir

Wolff er gapandi yfir þroska Hamilton

Toto Wolff, liðsstjóri Mercedes liðsins í Formúlu 1 segir að Lewis Hamilton hafi þroskast gríðarlega mikið síðan hann kom til liðsins.

Symonds: Öfug rásröð gæti aukið framúrakstur

Tæknistjóri Williams liðsins í Formúlu 1, Pat Symonds, telur að öfug rásröð myndi þvinga lið til að hanna bíla sem geta betur tekið framúr. Yfirmenn Formúlu 1 liða munu í vikunni taka ákvörðun um reglur ársins 2017.

Pirelli fær 25 prófunardaga á ári

Alþjóðlega akstursíþróttaráðið hefur samþykkt að dekkjaframleiðandinn Pirelli fái 25 daga prófanir á nýjum dekkjum með nýjustu Formúlu 1 bílunum hverju sinni.

Bílskúrinn: Keisarinn í Kína

Nico Rosberg vann sjöttu keppnina í röð í Formúlu 1 kappakstrinum í Kína. Rosber var sannkallaður keisar í Kína. Hann var einn og yfirgefinn í forystunni alla keppnina.

Arrivabene talar niður uppfærslu Ferrari

Ferrari mun mæta með uppfærðar vélar til Rússlands um helgina. Liðsstjóri Ferrari, Maurizio Arrivabene segir uppfærsluna ekki stórfenglega.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×