Formúla 1

Mercedes fljótastir á föstudagsæfingum

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Lewis Hamilton á æfingu í dag.
Lewis Hamilton á æfingu í dag. Vísir/Getty

Lewis Hamilton á Mercedes var fljótastur á fyrri æfingu dagsins í Abú Dabí. Liðsfélagi hans, Nico Rosberg var fljótastur á seinni æfingunni.

Kappaksturinn í Abú Dabí um helgina er síðasta keppni tímabilsins, það er því engin ástæða fyrir neinn til að halda aftur af sér.

Hamilton var rétt rúmum tíunda hluta úr sekúndu á undan liðsfélaga sínum, Rosberg.

Kimi Raikkonen á Ferrari var þriðji og Daniil Kvyat á Red Bull varð fjórði og Sebastian Vettel á Ferrari fimmti.

Það leit allt út fyir að æfingin myndi ganga snurðulaust fyrir sig. Fernando Alonso kvartað yfir vélavandræðum þegar tvær mínútur voru eftir.

Jolyon Palmer, tilvonandi ökumaður Lotus liðsins fékk að spreyta sig í bíl Romain Grosjean. Palmer sem er þróunarökumaður Lotus í ár, ók ekki nema níu hringi á æfingunni, vatnsleki batt enda á daginn hjá honum.

Sergio Perez var þriðji á Force India á seinni æfingunni.Vísir/Getty

Rosberg var fljótastur á seinni æfingunni. Hamilton varð annar og Sergio Perez á Force India varð þriðji.

Perez lenti í vandræðum þegar 20 mínútur voru eftir af æfingunni. Bremsurnar ofhitnuðu á bíl hans og bráðnuðu saman.

Alonso kom sterkur inn í níunda sæti, hann hefur sennilega komið meira að segja sjálfum sér á óvart.

Á keppnisæfingunum í dag virtist sem Ferrari gæti strítt Mercedes í keppninni um helgina. Heimsmeistararnir virðast þó enn hafa forskot yfir einn hring og því líklegir til að einoka fremstu ráslínu á morgun. Hins vegar getur keppnin orðið mjög spennandi.

Bein útsending frá tímatökunni hefst á Stöð 2 Sport klukkan 12:50 á morgun. Bein útsending frá keppninni verður á Stöð 2 Sport frá klukkan 12:30 á sunnudag.

Hér fyrir neðan má finna öll helstu úrslit helgarinnar á gagnvirku brautarkorti.


Tengdar fréttir

Nico Rosberg náði fimmta ráspólnum í röð

Nico Rosberg á Mercedes verður á ráspól í brasilíska kappakstrinum á morgun. Liðsfélagi hans, Lewis Hamilton varð annar í tímatökunni og Sebastian Vettel á Ferari varð þriðji.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×