Bílar

Mercedes Benz með 53% söluaukningu í Kína

Finnur Thorlacius skrifar
Sala Mercedes Benz C-Class hefur selst 60% betur í ár en í fyrra.
Sala Mercedes Benz C-Class hefur selst 60% betur í ár en í fyrra.
Það gengur vel hjá Mercedes Benz þessa dagana, en þó hvergi eins vel og í Kína. Í nýliðnum september seldi Benz 53% fleiri bíla en í sama mánuði í fyrra, eða 38.663 bíla. Heildarsala Benz í september um heim allan jókst um 16% en í mánuðinum afgreiddi fyrirtækið 188.444 bíla.

Salan hjá Benz hefur nú vaxið í 31 mánuð í röð og mun það vafalaust halda áfram út árið. Salan á árinu hefur vaxið næstum jafn mikið og í september, eða um 15%.

Sala Smart bíla gengur einnig gríðarvel, en Smart er í eigu Daimler, móðurfyrirtækis Mercedes Benz. Sala Smart bíla jókst um 51% í september og er það helst að þakka nýrri kynslóð Smart ForTwo og ForFour bíla. Heildarsalan á árinu hjá Smart er komin í 88.018 bíla og vöxturinn á árinu 31%.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×