Skoðun

Menntun metin til launa

Anna Guðrún Halldórsdóttir og Margrét Ófeigsdóttir skrifar
Við erum félagsráðgjafar og vinnum á geðsviði Landspítalans.

Á hverjum degi sinnum við verkefnum sem miða að því að sporna gegn félagslegu ranglæti með því að hafa ávallt réttindi einstaklingsins í fyrirrúmi. Hlutverk okkar á Landspítala er að tryggja að grunnþörfum einstaklingsins sé mætt svo hann geti sinnt sinni meðferð. Við vinnum við að tengja saman þær stofnanir sem koma að málefnum einstaklingsins og sjáum til þess að þær vinni að hagsmunum hans og tryggjum áframhaldandi þjónustu þegar heim er komið. Þetta er áhugavert og krefjandi starf sem krefst að lágmarki fimm ára háskólamenntunar og starfsréttinda sem vottuð eru af Landlækni.

Krafa okkar í Bandalagi háskólamanna er einfaldlega að menntun verði metin til launa. Í því felst annars vegar að þegar búið er að taka tillit til þess kostnaðar sem við höfum lagt út til að sækja okkur menntun þá verði kaupmáttur okkar ekki lakari en ef við hefðum ekki gengið menntaveginn. Hins vegar viljum við að stjórnvöld sýni að þau meti menntun og sérfræðiþekkingu að verðleikum og vilji gera opinberar stofnanir að eftirsóknarverðum vinnustöðum.

Dýrt að mennta sig

Það er dýrt að mennta sig, bæði á meðan á námi stendur og síðan þegar kemur að því að greiða af þeim skuldum sem safnast hafa upp á námstímanum. Sem dæmi má nefna að það fara 3 vikna laun á ári hjá hverjum félaga í BHM í að greiða af námslánum. Það blasir við að ríkið er ekki ákjósanlegur vinnustaður fyrir háskólamenntað fólk. Eins og staðan er í dag er Landspítalinn ekki samkeppnisfær um félagsráðgjafa þar sem það bjóðast 100 þúsund krónum hærri heildarlaun hjá Reykjavíkurborg og sveitarfélögum. Það er erfitt fyrir okkur að mæla með Landspítalanum sem vinnustað í ljósi þess að stjórnvöld telja það réttlætanlegt að greiða tæplega 360 þúsund krónur á mánuði í laun til þeirra sem koma beint úr 5 ára háskólanámi.

Félagsráðgjafafélag Íslands er í verkfallsaðgerðum ásamt öðrum félögum innan BHM. Við viljum að stjórnvöld svari því hvernig þau ætla að laða til starfa hjá ríkinu vel menntað fólk með sérfræðiþekkingu. Nú stendur það upp á stjórnvöld að svara þessum spurningum. Það geta þau með því að ganga til sanngjarnra samninga við BHM og leiðrétta launakjör háskólamenntaðra á landinu.

Hefurðu sögu að segja eða skoðun að deila? Ef svo er sendu okkur grein ásamt mynd á netfangið ritstjorn(hja)visir.is




Skoðun

Sjá meira


×