Skoðun

Menntun fyrir vinnufúsar hendur

Sigurður Páll Jónsson skrifar
Mikilvægt áhersluatriði í stefnuskrá Miðflokksins er að stórefla iðn og tækninám. Þar er á ferðinni mál sem flestir eru sammála um en hefur einhverja hluta vegna orðið útundan um alltof langan tíma. Viðhorfsbreytingar þurfa að eiga sér stað segja sumir, allt frá löggjafanum og til þeirra sem standa frammi fyrir því að velja sér námsleið til framtíðar. Þegar ungt fólk, oftast í samráði við foreldra eða foráðamenn sína, spekúlerar í námsleiðum, er bóknámið oftar en ekki valið, sennilega ekki síst vegna þess að því er gert hærra undir höfði af yfirvöldum.

Nýlegt dæmi um slíkt viðhorf eða skilningsleysi sem er framþróun á iðnnámi til trafala er að erlendir iðnnemar fá ekki lengur dvalarleyfi til náms á Íslandi eftir breytingu á útlendingalögum. Nám í skilningi lagana er eingöngu nám á háskólastigi. Það er ánægulegt að dómsmálaráðherra hefur nú líst yfir að unnið sé að lagfæringu á þessari mismunun lagana og ljóst að Alþingi þarf að taka til meðferðar um leið og þingið kemur saman og afgreiða hratt og vel til að jafnræði verði tryggt. Skortur er á iðnmenntuðu starfsfólki á vinnumarkaði út um allt land og því er mikilvægt að hvetja ungmenni til að sækja sér dýrmæta þekkingu í fjölbreyttu iðnnámi. Unnið hefur verið að því að að brúa bilið á milli iðnnáms og háskólanáms sem eykur möguleika á frekari menntun síðar meir, og er það vel.

Til þess að auka áhuga ungmenna á iðn og tækninámi þarf í fyrsta lagi aukið fjármagn til námsbrautanna, fjármagn sem er sérstaklega eyrnamerkt iðn og tækninámi en lendir ekki í einhverjum heildar potti sem virðist hafa verið raunin á undanförnum árum. Samhliða þarf að styrkja tengsl atvinnulífs og iðnnáms að starfnámshlið iðnnámsins skapi ekki flöskuháls.

Í heimi hraðra breytinga er ljóst að lítið samfélag mun þurfa mjög á iðn- og tæknimenntuðu fólki að halda í framtíðinni. Besta leiðin til að búa samfélagið undir örar breytingar næstu áratuga er að styrkja slíkt nám og gera það aðlaðandi fyrir ungt fólk dagsins í dag. Markvisst átak til styrkingar iðn- og tæknináms mun skila sér margfalt aftur til samfélagsins. Það er því ekki eftir neinu að bíða.

Höfundur er þingmaður Miðflokksins fyrir Norðvesturkjördæmi.




Skoðun

Skoðun

Bestu árin

Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Sigríður Gísladóttir skrifar

Sjá meira


×