Skoðun

Menntun eitt öflugasta vopnið til þess að breyta heiminum

Jónína Sigurðardóttir skrifar
Það er skoðun margra að hver sem er geti kennt eða sinnt börnum. Börn verja bróðurparti af deginum á menntastofnunum, á frístunda- og íþróttaheimilum og viljum við að sjálfsögðu að þar sé vel menntað fólk sem sinnir þeim. Mikil fræði eru á bak við það hvernig best er að kenna börnum og hvaða uppeldishættir eru heppilegastir og því er mikilvægt að ýta undir stoðir menntavísinda hér á landi og gera þeim hærra undir höfði.

Nám í uppeldis og menntunarfræði er fjölbreytt og krefjandi sem býður upp á ýmsa möguleika í framtíðinni. Margir velta eflaust fyrir sér hverjir þessir fjölbreyttu möguleikar eru og hvað það er sem við lærum. Námið er einstaklega margbreytilegt þar sem boðið er upp á mikið val á námskeiðum. Þetta gerir það að verkum að það eru ekki allir sem útskrifast úr náminu með sömu áherslur og auðveldar þetta mörgum að finna sitt áhugasvið. Við skrif þessa pistils gerði ég smá athugun og fékk hátt í 50 svör frá brautskráðum nemendum úr greininni til þess að segja frá við hvað þau starfa í dag. Svörin voru jafn ólík og þau voru mörg. Meðal starfsheita eru talmeinafræðingar, náms- og starfsráðgjafar, kynjafræðingar, ráðgjafar og kennarar svo fátt eitt sé nefnt. Aðrir fóru óhefðbundnari leiðir við að nýta menntun sína og má nefna konu sem starfaði lengi sem framleiðslustjóri tölvuleikja og aðra sem vinnur hjá UNICEF í Malaví sem menntasérfræðingur. Þetta eru bara nokkur af þeim fjölmörgu dæmum sem ég fékk frá þessum frábæra hópi og má með þeim augljóslega sjá þá miklu breidd sem námið býður upp á. 

Námið leggur góðan grunn að framtíðinni, hvort sem stefnan er í áframhaldandi nám eða á starfsvettvang . Einn af helstu kostum námsins er að það gagnast manni vel í daglegu lífi, m.a. við að leysa úr ágreiningi milli fólks, sinna uppeldi barna og/eða hlusta almennilega á það sem fólk hefur að segja. Námið opnar huga manns og ýtir undir gagnrýna hugsun sem ég hef trú á að geri okkur að betri fræðimönnum í framtíðinni.

Nelson Mandela sagði eitt sinn að menntun væri eitt öflugasta vopnið til þess að breyta heiminum. Ég er sammála þessari fullyrðingu og ekki einungis í þeim skilningi að átt sé við nám í kennslustofum, við erum nefnilega alla ævina að læra. 

 




Skoðun

Sjá meira


×