Menntun ábyrgra stjórnenda – ábyrgð háskóla

Fréttablaðið Aðsendar greinar 08. febrúar 2012 06:00
Bryndís Hlöðversdóttir
rektor
Bryndís Hlöðversdóttir rektor
Bryndís Hlöðversdóttir skrifar:
Leiðtogar dagsins í dag, hvort sem er í stjórnmálum eða viðskiptalífi, standa frammi fyrir áskorunum á borð við umhverfisvá sem fylgir vaxandi velmegun í heiminum, að ekki sé talað um aðra þætti mannlegs atferlis sem ógnað geta mannlegu samfélagi á borð við spillingu og slæma stjórnarhætti. Það er mikilvægt fyrir framtíð alls mannkyns að leiðtogar framtíðarinnar taki á slíkum viðfangsefnum af ábyrgð og virðingu fyrir komandi kynslóðum en láti ekki skammtímasjónarmið ráða för.

Háskólar gegna hér lykilhlutverki, þeir mennta forystufólk í viðskiptalífi, í stjórnmálum og í vísindum og eigi það markmið að takast að innleiða hugsun sjálfbærni og samfélagsábyrgðar inn í framtíðarstefnumótun, þá þurfa háskólarnir að vera í broddi þeirrar fylkingar.

Menningarmálastofnun Sameinuðu Þjóðanna (UNESCO) hefur tilnefnt áratuginn 2005-2014 áratug menntunar til sjálfbærrar þróunar en markmiðið með því er að tvinna lögmál, gildi og viðhorf sjálfbærrar þróunar inn í alla kennslu og starfsemi menntastofnana og auka þannig vitund og skilning skólasamfélagsins á sjálfbærni og samfélagslegri ábyrgð.


Átak SÞ til menntunar ábyrgra leiðtoga
Háskólar um allan heim hafa eftir að efnahagskreppan skall á verið gagnrýndir fyrir það að hafa útskrifað fólk sem hafi einkum haft gróðahyggju og skammsýni að leiðarljósi við ákvarðanatöku en síður lagt áherslu á gott siðferði, góða stjórnarhætti, samfélagsábyrgð og virðingu fyrir umhverfi og hagsmunum heildarinnar.

Í tengslum við áratug SÞ um menntun til sjálfbærrar þróunar hefur verið komið á fót sameiginlegu átaki þeirra menntastofnana sem vilja vinna markvisst að því að mennta ábyrga stjórnendur (PRME – Principles for responsible management education). Nú þegar hafa um fjögur hundruð menntastofnanir skráð sig til þátttöku í átakinu, en Háskólinn á Bifröst er fyrstur íslenskra háskóla til að undirrita viljayfirlýsingu PRME. Átakið styður menntastofnanir til að aðlaga kennsluskrá sína, rannsóknir, kennsluaðferðir og daglega starfsemi að hugmyndafræði sjálfbærrar þróunar á kerfisbundinn hátt. Á meðal þátttakenda eru margir virtustu viðskiptaháskólar heims en þátttakendur hafa skipulagt samstarf sín á milli og miðla hver öðrum af reynslu sinni af þátttökunni.


Sex markmið
Stefna Háskólans á Bifröst er í endurskoðun með hliðsjón af markmiðum um menntun ábyrgra stjórnenda og verður ný stefna kynnt fyrir mitt ár 2012. Átakið byggir á 6 markmiðum sem þátttakendur skuldbinda sig til að vinna að til en þau eru þessi í stuttu máli;


  • að efla með markvissum hætti færni nemenda til að vinna að sjálfbæru hagkerfi í heiminum
  • að endurspegla hugmyndafræði sjálfbærrar þróunar og samfélagsábyrgðar í námsskrá, námsefni og kennslufræði skólans
  • að bjóða upp á aðstæður og aðbúnað í háskólanum sem gera nemendum kleift að efla færni sína sem ábyrgir stjórnendur
  • að stunda rannsóknir sem auka skilning á hlutverki og mögulegum áhrifum fyrirtækja á þróun félagslegra, umhverfislegra og efnahagslegra gilda
  • að leita eftir virku samstarfi við fyrirtæki til að auka skilning á þeim samfélagslegu og umhverfislegu áskorunum sem þau standa frammi fyrir og þróa í samstarfi við þau leiðir til að takast á við þær áskoranir
  • að standa fyrir gagnrýnni umræðu á meðal fyrirtækja, fjölmiðla og annarra áhugasamra hagsmunahópa í samfélaginu um sjálfbærni og samfélagsábyrgð.

Við Háskólann á Bifröst er nú unnið markvisst að innleiðingu markmiðanna og hefur verið ráðinn sérstakur starfsmaður á skrifstofu rektors til að fylgja þeim eftir með endurskoðun allra námskeiðslýsinga, kennslufræði og annarra þátta í starfsemi skólans. Ljóst er að til að slík innleiðing náist þurfa allir starfsmenn og nemendur skólans að koma að henni og hún verður ekki unnin á einni nóttu. Það þarf sífellt að hafa vökult auga fyrir því að eftir markmiðunum sé unnið. Það er von okkar að fyrsta þætti innleiðingarinnar, að festa markmiðin í opinbera stefnu skólans, verði lokið fyrir mitt þetta ár ásamt því að endurskoða allar námskeiðslýsingar með hugmyndafræði sjálfbærrar þróunar að leiðarljósi.

Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.

Fleiri fréttir - Aðsendar greinar

Aðsendar greinar 25. maí. 2012 14:00

Norðurlönd á norðurskautssvæðinu

Norðurskautssvæðin hafa flust nær miðju heimsstjórnmálanna og munu fá aukið vægi í framtíð...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

"Nýja háskólasjúkrahúsið – kjarni málsins“

Í aðsendri grein Sighvats Björgvinssonar þ. 21. maí 2012 greinir Sighvatur snöfurmannlega ...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Þrír menn og króna

Árið 2006 tókum við hjónin lán fyrir íbúð. Við áttum von á okkar fyrsta barni og fannst áb...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 17:00

1000 andlit MS - að lesa bók með lopavettlinga á höndum

Hefur þú lesandi góður reynt að lesa/fletta dagblaðinu eða bók með lopavettlinga á höndum?...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Fiskveiðistjórnunin. Allan sannleikann, takk!

Ógnandi mynd er nú þrengt inn í þjóðarsálina með auglýsingum og fyrirsögnum í fjölmiðlum u...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Friðun í herkví sveitarfélaga og bænda

Umhverfisráðherra, Svandís Svavarsdóttir, segir í fréttaskýringu (Friðlýsing náttúrusvæða)...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Um vald forsetans

Margt bendir til að vandi okkar Íslendinga um þessar mundir sé ekki síður menningarlegur e...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Gulrætur og villandi samanburður

Fréttablaðið birti þann 8. maí sl. grein um framleiðslu ísraelska fyrirtækisins Protalix B...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Ekki var Huang gerður strámaður

Í blaðaviðtali í ágúst í fyrra kynnti Hjörleifur Sveinbjörnsson, yfirþýðandi í Þýðingarmið...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Þegar tunnurnar þagna

Ég er þreyttur á að vera reiður. En samt var eigninni minni stolið ásamt öllu mínu sparifé...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Svar við bréfi Sighvats

Í stuttri grein Sighvats Björgvinssonar í Fréttablaðinu 24. maí sl. þar sem hann þakkar fy...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Þú ert stunginn, það er vont og þú færð engan pening

Á hverjum degi láta um 70 manneskjur það yfir sig ganga að víkja í eina klukkustund frá da...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 16:00

Eru Íslendingar vel menntuð þjóð?

Því er iðulega slegið fram sem sönnu að þrátt fyrir bágan efnahag og erfitt ástand hafi Ís...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 11:48

Óskabarn stjórnvalda: þögull forseti

Það þótti ekki tiltökumál þegar að Viðskiptaráð hreykti sér af því fyrir hrun að stjórnvöl...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Takk, Jóhannes

Ég þakka Jóhannesi Gunnarssyni lækni kærlega fyrir svar hans við grein minni um Landspítal...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Er allur þjófnaður í matvöruverslunum tilkynntur til lögreglu?

Undanfarin ár hefur talsmaður matvöruverslunar mætt reglulega á útvarpsstöðina Bylgjuna og...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Stjórnmálasamtökum er gert mishátt undir höfði

Mikilvægt er í samfélagsumræðunni að sanngirni sé gætt í samanburði á sýnileika stjórnmála...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Spurningar áréttaðar

Í grein hér í blaðinu þann 3ja maí síðastliðinn spurði ég forystu Bændasamtaka Íslands, að...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Kynheilbrigðismál – ekki er ráð nema í tíma sé tekið!

Gagnleg umræða um kynheilbrigðismál hefur verið í fjölmiðlum að undanförnu. Rætt hefur ver...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 11:53

Nokkur orð um Vaðlaheiðargöng

Töluverðar deilur hafa átt sér stað undanfarin misseri varðandi fyrirhugaða framkvæmd Vaðl...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Er þjóðin bótaskyld vegna gjafakvótans?

Núverandi kvótahafar hafa ítrekað smjattað á málsókn gegn ríkinu verði kvótinn innkallaður...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Boðið upp í dansinn

Úr þessum penna hefir margsinnis dropið, að sagnfræðingar framtíðar muni dæma harðast allr...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Sagan af brúnu tunnunni

Ég myndi helst vilja eignast hænur til að breyta matarafgöngunum mínum í egg, en get það e...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Við biðjum Skálholti griða

Sagan segir að Gissur Ísleifsson hafi um aldamótin 1100 gefið Skálholtsland með því skilyr...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Sameinum Neytendastofu og talsmann neytenda

Í byrjun árs 2010 boðaði forsætisráðherra að raunhæft væri að fækka 200 stofnunum ríkisins...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Á nútíminn erindi á Bessastaði?

Frá unga aldri hef ég litið á forsetaembættið sem formlegt embætti, þar sem einungis fína ...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Ferðamenn + viðhald ferðastaða = gistináttaskattur?

Skattlagningarform ferðamannaskatts er ekki í samræmi við markmið samhangandi laga þó að h...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 16:50

Ég hafði val

Í nokkur ár hef ég heyrt málefnaleg rök um þróun handboltans sem og innihaldslausar umræðu...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Sátt í Aserbaídsjan

Borgin Shusha tilheyrði Aserbaídsjan fram til 8. maí 1992, þegar hún var hernumin af Armen...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Ljósnet fyrir neytendur

Síminn hefur nýlega sagt frá því að fyrirtækið hafi hafið annan hluta Ljósnetsvæðingar sem...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Til Heiðu

Ekki hafði ég ætlað mér að standa í ritdeilu en í svari Heiðu Kristínar Helgadóttur (Til k...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Aðbúnaður dýra á Íslandi

23-25. des. sl. var viðtal í Fréttatímanum við Árna Stefán Gunnarsson þar sem hann m.a. tj...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Pólitískt hlutverk forsetans

Andstætt því sem stundum er gefið í skyn eru íslensk stjórnlög að meginstefnu skýr um stjó...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Lína lifir!

Á fundi sínum í Ósló 26. apríl sl. samþykktu norrænu mennta- og menningarmálaráðherrarnir ...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Jákvæð samskipti

Einelti er því miður afar alvarlegt samfélagslegt vandamál og sem slíkt er nauðsynlegt að ...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Slegist við strámann á Fjöllum

Merkilegur andskoti hvað við erum léleg að ræða málin. Hér er lenska að virða ekki skoðani...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Öflugt sjúkrahús - kjarni málsins

Um þessar mundir er í nágrannalöndum Íslands víða verið að rífa sjúkrahúsbyggingar sem ekk...  

Meira
Aðsendar greinar 22. maí. 2012 06:00

Flokkur eða hagsmunasamtök?

Meðan hagsmunasamtök berjast fyrir afmarkaðan hóp manna sem á eitthvað sameiginlegt, berja...  

Meira
Aðsendar greinar 22. maí. 2012 06:00

Sérfræðingur að sunnan

Helga Vala Helgadóttir hefur í nýlegu viðtali við Fréttatímann og í grein í Fréttablaðinu ...  

Meira
Aðsendar greinar 22. maí. 2012 06:00

Opið bréf til menntamálaráðherra

Nú í vor sóttu foreldrar þroskaskerts drengs á ellefta ári um skólavist fyrir drenginn í K...  

Meira
Aðsendar greinar 21. maí. 2012 16:10

Stuðningsgrein: Að kveða burt snjóinn

Það blása frískir og fjörugir vorvindar um landið. Æðarfuglinn hreiðrar um sig í Bessastað...  

Meira
Aðsendar greinar 21. maí. 2012 06:00

Nýja háskólasjúkrahúsið – kjarni málsins

Umræðan um risabyggingu nýs spítala í miðbæ Reykjavíkur er hafin. Halldór Laxness orðaði u...  

Meira
Aðsendar greinar 21. maí. 2012 06:00

Ráðherrann og samræðugenin

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra skrifaði einkar athyglisverða grein í Fréttablaðið...  

Meira
Aðsendar greinar 19. maí. 2012 06:00

Forseti og siðferði

Í samfélögum Vesturlanda nú á dögum eru tvær valdamiðstöðvar helstar. Önnur er á vettvangi...  

Meira
Aðsendar greinar 19. maí. 2012 06:00

Hvenær vegur maður að…

Þann 30. apríl sl. voru 15 og 16 ára gamlir hælisumsækjendur dæmdir í 1 mánaðar langt óski...  

Meira
Aðsendar greinar 19. maí. 2012 06:00

Ný atvinnustefna – framkvæmdum hraðað

Aðgerðir ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum hafa skilað áþreifanlegum árangri. Enn dregur ...  

Meira
Aðsendar greinar 18. maí. 2012 12:25

NASA - hugleiðing

Þegar ég las greinina hans Páls Óskars þar sem hann sagði frá því búið væri að segja upp s...  

Meira
Aðsendar greinar 18. maí. 2012 06:00

Forsetinn: Tákn eða afl

Ég held ekki að það sé sérlega eftirsóknarvert að vera forseti. Líklega er þó skárra að ve...  

Meira
Aðsendar greinar 18. maí. 2012 06:00

Þegar ég missi trúna á mannkyninu

Heima í Neskaupstað er eitt af þeim glæsilegu félagsheimilum sem landið státar af. Í því f...  

Meira
Aðsendar greinar 18. maí. 2012 06:00

Verður þá enginn fiskur veiddur meir?

Útgerðarfyrirtæki landsins auglýsa nú grimmt gegn fyrirhuguðum breytingum á fiskveiðistjór...  

Meira

Mest lesið: Umræðan

Nýjast á Vísi

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Lifid
  • Allt

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Umræðan / Aðsendar greinar / Menntun ábyrgra stjórnenda – ábyrgð háskóla