Viðskipti innlent

Menn önduðu léttar í Seðlabankanum

Þorbjörn Þórðarson skrifar
Óvissu um lögmæti verðtryggingar hefur að miklu leyti verið eytt með dómi EFTA-dómstólsins og niðurstaðan er jákvæð fyrir fjármálastöðugleika í landinu, segir Már Guðmundsson seðlabankastjóri. 

Beðið var dóms EFTA-dómstólsins um ráðgefandi álit um tilskipun um óréttmæta skilmála í neytendasamningum með talsverðri eftirvæntingu enda miklir hagsmunir í húfi.

Hundruð milljarða króna eignir Íbúðalánasjóðs og þar með skattgreiðenda hefðu getað verið í uppnámi. Þá eru eignir lífeyrissjóðanna og þar með alls almennings háðar því að verðtrygging haldi ef greiðsla lífeyris í framtíðinni á að endurspegla breytingar á verðmæti þess gjaldmiðils, þ.e. krónum, sem hann er greiddur út í.

Færð hafa verið rök fyrir því að ef niðurstaðan hefði verið á þann veg að verðtryggingin væri óskuldbindandi og Hæstiréttur dæmdi efnislega í samræmi við það væru samt engar líkur á því að ríkissjóður færi á hausinn. 

Helstu embættismenn fjármálaráðuneytisins og Fjármálaeftirlitsins (FME) voru saman komnir á fundi með starfsmönnum Seðlabankans í morgun eftir að dómurinn var kveðinn upp.

Menn fara sér í engu óðslega við að draga ályktanir af niðurstöðu dómsins enda eiga íslenskir dómstólar eftar að dæma í málinu. 

Olli engum titringi

„Það er óhætt að segja að þetta álit EFTA-dómstólsins hafi ekki valdið neinum sérstökum titringi. Málið er að vísu óútkljáð fyrir íslenskum dómstólum. Við bíðum eftir þeirri niðurstöðu en ég get ekki séð að þetta valdi neinum titringi á íslenskum markaði á þessum tímapunkti,“ segir Jón Þór Sturluson, aðstoðarforstjóri FME. 

Már Guðmundsson seðlabankastjóri var á fundinum þegar beðið var niðurstöðu dómsins en Seðlabankinn hafði unnið nokkrar ólíkar sviðsmyndir vegna málsins eftir því hver niðurstaðan yrði.

Andið þið ekki léttar í kjölfar þessa álits EFTA-dómstólsins þótt þetta sé ekki endanleg niðurstaða? „Jú, það má segja það. Auðvitað er alltaf gott fyrir fjármálastöðugleika þegar óvissu er eytt. Núna er búið að eyða þeirri óvissu að eitthvað svona geti haft áhrif á hann mun ekki koma úr þessari átt, allavega,“ segir Már.

Annar dómur bíður

Ekki er búið að eyða endanlega réttaróvissu um verðtrygginguna þegar þetta mál er til lykta leitt því síðar á þessu ári mun EFTA-dómstóllinn skila ráðgefandi áliti í máli viðskiptavinar Landsbankans sem stefndi bankanum vegna verðtryggðs yfirdráttarláns.

Í því máli var óskað eftir ráðgefandi áliti um lögmæti þess að miða við 0% verðbólgu við útreikning á heildarlántökukostnaði ásamt ár­legri hlut­fallstölu kostnaðar í lánasamningi.  


Tengdar fréttir

Telur líklegt að verðtryggingin haldi hjá íslenskum dómstólum

Már Guðmundsson, seðlabankastjóri, telur líklegt að verðtrygging neytendalána haldi þegar málið fer fyrir íslenska dómstóla. Hann segir mikilvægt að búið sé að eyða þeirri óvissu sem var uppi vegna ákvörðunar EFTA-dómstólsins.

Hundraða milljarða hagsmunir í húfi

EFTA-dómstóllinn kveður á morgun upp dóm í máli lántakanda gegn Íslandsbanka vegna láns frá 2007. Í málinu er tekist á um það hvort verðtrygging fasteignalána sé lögmæt. Heildarupphæð verðtryggðra lána á Íslandi eru 1.500 milljarðar króna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×