Meningókokkum C útrýmt 30. apríl 2005 00:01
Tekist hefur að útrýma meningókokkum C á Íslandi hjá fólki undir tvítugu en bakterían veldur meðal annars heilahimnubólgu og hefur kostað fjölda mannslífa. Þetta er árangur bólusetningar sem hófst fyrir tveimur og hálfu ári. Með bólusetningunni hefur tekist að bjarga fjölda mannslífa. Átakið hófst í október árið 2002. Bólusetja átti alla Íslendinga undir tvítugu og tókst að ná í liðlega 85 prósent, en bólusetningaraðgerðinni lauk á einu ári. Þórólfur Guðnason læknir, sem hafði veg og vanda af verkefninu, segir að nú strax sé hægt að meta árangurinn. Ekki hafi orðið vart við eitt einasta tilfelli af meningókokkum C hjá fólki undir tvítugu eftir að bólusetning hófst gegn þeim. Að sögn Þórólfs veiktust 8-10 Íslendingar undir tvítugu á ári og var dánartíðnin um 10% þannig að einn lést að meðaltali á ári eða annað hvert ár. Meningokókkar C valda meðal annars heilahimnubólgu og blóðsýkingum og meðganga sýkingarinnar er oft stutt. Það er því ljóst að með átakinu hefur tekist að bjarga mannslifum. En það er ekki bara að þessi mikli árangur hafi náðst. Þórólfur segir átakið einnig hafa verið skoðað fjárhagslega. Gerð hafi verið kostnaðarhagkvæmnisgreining á átakinu og það hafi komið í ljós að það sé mjög kostnaðarhagkvæmt að standa fyrir átaki sem þessu. Tilfellum hjá þeim sem eru yfir tvítugu og voru ekki bólusettir hefur einnig snarfækkað. Hér á Íslandi hefur B-stofn þessara bakteríu einnig greinst en ekkert bóluefni er enn til við honum. Auk átaksins er bólusett gegni meningókokkum C í almennum ungbarnabólusetningum þannig að þetta skipulag er til framtíðar. Þórólfur segir að bólusetningin sé inni í ungbarnabólusetningum við 6 og 8 mánaða aldur og verði það væntanlega eitthvað áfram. Erfitt sé að segja til um það hvort það breytist síðar meir en hann segist geta fullyrt í dag að bólusetningin verði áfram inni í bólusetningarskemanu.
Fréttir Innlent Mest lesið „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Innlent „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Innlent Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali Innlent Skoða hvernig brotthvarfi Bandaríkjanna úr hafrannsóknum verður mætt Innlent Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Innlent Fleiri fréttir Landris og kvikusöfnun heldur áfram Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Áfrýjar ekki dómi fyrir brot á Múlaborg Gervigreindin aukið hraða netsvika gríðarlega Góður gangur í fundarhöldum um þinglok Enn tekist á um þingstörfin og gervigreindin eykur hættuna á netglæpum Jóna Árný endurráðin bæjarstjóri „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Skoða hvernig brotthvarfi Bandaríkjanna úr hafrannsóknum verður mætt Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám Sjá meira