Fótbolti

Melbourne hafði betur gegn Juve eftir vítaspyrnukeppni | Sjáðu ótrúlegt mark frá miðju

Stefán Árni Pálsson skrifar
Melbourne Victory og Juventus gerðu 1-1 jafntefli í International Champions Cup í Ástralíu í morgun. Liðin þurfti því að fara í vítaspyrnukeppni og þar hafði Victory betur, 4-3.

Juventus var ekki með sitt besta lið en samt sem áður byrjaði nokkuð vel mannað lið í morgun.

Leikmenn Melbourne Victory stóðu heldur betur í þeim og var staðan í hálfleik 0-0.

Í upphafi síðari hálfleiks skoraði Carlos Blanco Moreno magnað mark fyrir Juve þegar hann setti boltann í netið frá miðju.

Á 83. mínútu náði Jai Ingham að jafna metin fyrir Melbourne og þurfti að grípa til vítaspyrnukeppni.

Þar hafði Victory betur en hér að ofan má sjá magnað mark sem Juventus skoraði frá miðju í morgun.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×