Bíó og sjónvarp

Mel Gibson sagður í viðræðum um að leikstýra Suicide Squad 2

Birgir Olgeirsson skrifar
Mel Gibson.
Mel Gibson. Vísir/EPA
Kvikmyndaverið Warner Bros. er sagt í viðræðum við Mel Gibson um að leikstýra framhaldinu af Suicide Squad. Frá þessu var greint í Hollywood Reporter en verði þetta að veruleika þýðir það að Gibson mun taka við af David Ayer sem leikstýrði Suicide Squad.

Myndin kom út í fyrra og fékk heilt yfir slæma dóma frá gagnrýnendum en rakaði þó inn 745 milljónum dollara í miðasölu kvikmyndahúsa á heimsvísu.

Mel Gibson leikstýrði myndinni Hacksaw Ridge sem er tilnefnd til sex Óskarsverðlauna, þar á meðal Gibson sem besti leikstjórinn.

Gibson er þegar með nokkur fyrirhuguð verkefni á sínum lista en hann mun leika í lögreglutryllinum Dragged Across Concrete ásamt Vince Vaughn og þá mun hann leika í myndinni The Professor and The Madman á móti Sean Penn.

Suicide Squad 2 yrði ekki fyrsta ofurhetjumyndin sem Mel Gibson er orðaður við. Robert Downey Jr. sagði fyrir nokkru að hann væri til í að gera fjórðu Iron Man-myndina ef Mel Gibson yrði leikstjóri hennar.

Gibson sagði við Total Film í fyrra að hann myndi að sjálfsögðu íhuga það.

„Það gæti orðið gaman,“ sagði Gibson en bætti við að hann yrði þá að finna leið til að gera Iron Man 4 frábrugðna öðrum myndum ef hann ætti að gera það.

Robert Downey Jr. var ekki einn um að vilja Mel Gibson sem leikstjóra fjórðu Iron Man-myndarinnar. Shane Black, leikstjóri þriðju Iron Man-myndarinnar, lýsti þeirri skoðun einnig en Shane Black skrifaði handrit fyrstu tveggja Lethal Weapon-myndanna þar sem Mel Gibson lék rannsóknarlögreglumanninn Martin Riggs sem myndaði ódauðlegt tvíeyki með Roger Murtaugh, sem Danny Glover lék.

Gibson hefur verið í nokkurs konar útlegð frá Hollywood í um áratug eftir röð hneykslismála. Shane Black sagði það skiljanlegt að Downey Jr. vildi fá Gibson sem leikstjóra fjórðu Iron Man-myndarinnar því að Gibson hefði reynst Downey Jr. þegar Downey sjálfur gekk í gegnum mikinn öldudal á sínum ferli.


Tengdar fréttir

Jókerinn Jared Leto

Kvikmyndin Suicide Squad hefur fengið slæma dóma og hefur vakið nokkra athygli að Jókernum, leiknum af Jared Leto, bregður lítið fyrir í myndinni þrátt fyrir að hann hafi verið auglýstur sérstaklega í öllum stiklum og kitlum sem birtust fyrir útgáfu hennar.

Stefnir í einn áhugaverðasta Óskar síðustu ára

Nú hafa tilnefningar til Óskarsverðlaunanna verið gerðar opinberar. Ýmislegt áhugavert og spennandi má finna á þeim lista, þó að annað sé miður skemmtilegt. Endurkoma Mels Gibson, Íslendingar hlunnfarnir, réttindabarátta svartra og fleira. Fréttablaðið fer yfir áhugaverða punkta sem má finna í tilnefningunum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×