Sport

Meistararnir enn ósigraðir

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar

NFL-meistararnir í New England Patriots er enn ósigrað eftir að liðið vann Buffalo Bills í lokaleik 11. umferðarinnar í nótt, 20-13. Patriots hefur unnið alla tíu leiki sína til þessa, rétt eins og Carolina Panthers.

Sjá einnig:Panthers fyrst í tíu sigra

Buffalo tapaði í enn eitt skiptið fyrir Tom Brady, leikstjórnanda Patriots. Þetta var 25. sigur Brady í alls 28 leikjum en Brady kastaði alls 277 jarda í leiknum og fyrir einu snertimarki.

Hann kláraði þó aðeins 20 af 39 sendingum sínum en liðið er án Julian Edelman, sterkasta útherja síns, en til að bæta gráu ofan á svart þá meiddist Danny Amendola, annar útherji, í leiknum í nótt. Brady sagði eftir leik að aðeins tveir útherjar væru nú heilir heilsu hjá Patriots og það hefði sín áhrif.

Patriots hafði einnig misst besta hlauparann sinn, Dion Lewis, fyrr á tímabilinu en í fjarveru hans skoraði James White tvö snertimörk í nótt - sín fyrstu á ferlinum. Hjá Buffalo skilaði LeSean McCoy bestu tölunum en hlauparinn var með samtals 122 jarda og eitt snertimark.

Patriots freistar þess nú að komast í gegnum alla sextán leiki tímabilsins án þess að tapa en það gerðist síðast fyrir átta árum síðan. Það gæti þó reynst erfitt miðað við meiðslastöðu liðsins en á meðan að Brady er heill er möguleikinn sannarlega fyrir hendi.

Buffalo hefur nú unnið fimm leiki en tapað fimm og er í öðru sæti í austurriðli Ameríkudeildarinnar ásamt New Jersey Jets. Hvorugt lið á raunhæfan möguleika að hrifsa efsta sætið af Patriots en bæði geta enn komist í úrslitakeppnina sem svokallað „Wild Card“ lið.

Sigurvegarar riðlanna fjögurra í hvorri deild (Ameríku- og Þjóðardeild) fara í úrslitakeppninna ásamt þeim tveimur liðum sem bestum árangri ná í hvorri þeirra.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×