Körfubolti

Meistararnir einum sigri frá því að sópa Spurs í sumarfrí | Myndband

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Kevin Durant er búinn að vera magnaður á móti Spurs.
Kevin Durant er búinn að vera magnaður á móti Spurs. vísir/getty
Philadelphia 76ers komst í nótt í 2-1 í rimmunni gegn Miami Heat í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta með öruggum 20 stiga sigri, 128-108.

Joel Embiid sneri aftur í lið Sixers eftir meiðsli og skoraði 23 stig auk þess sem að hann tók sjö fráköst og gaf fjórar stoðsendingar en Ben Simmons gældi við þrennu með 19 stigum, tólf fráköstum og sjö stoðsendingum.

Það stefnir svo í sóp í tveimur einvígum í vestrinu þar sem að New Orleans Pelicans og Golden State Warriors unnu bæði fyrstu útileiki sína í nótt og eru komin í 3-0.

Pelicans vann Portland, 119-102, þar sem að Nikola Mirotic skoraði 30 stig og tók átta fráköst en Anthony Davis skoraði 28 stig og tók ellefu fráköst. Golden State á leiðinni í sumarfrí ef það tapar næsta leik.

Meistarar Golden State eiga svo í engum vandræðum með San Antonio Spurs en liðið vann þriðja leikinn á útivelli í nótt með þrettán stiga mun, 110-97.

Kevin Durant heldur áfram að ganga frá Spurs-liðinu en hann skoraði 26 stig, tók níu fráköst og gaf átta stoðsendingar í leiknum. Golden State er enn þá án Stephen Curry.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×