Fótbolti

Meistararnir byrja á sigri

Anton Ingi Leifsson skrifar
Vísir/Getty
Tveir leikir fóru fram í Seríu A á Ítalíu í kvöld, en toppliðin frá síðasta tímabili; Juventus og Roma unnu bæði mótherja sína.

Juventus mættu Chievo Verona í Verona og eina markið kom eftir sex mínútna leik þegar Cristiano Biraghi skoraði sjálfsmark. Gestirnir voru þó mun meira með boltann eða 74% talsins.

Radja Nainggolan kom Roma yfir gegn Fiorentina eftir 28. mínútna leik og fyrrverandi Arsenal maðurinn Gervinho tryggði svo sigurinn í uppbótartíma.

Fyrsta umferðin heldur svo áfram á morgun þar sem meðal annars Emil Hallfreðsson og félagar í Hellas Verona mæta Atalanta á útivelli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×