Enski boltinn

Meistaradeildarvon Liverpool orðin enn minni

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Emre Can og James Morrison eigast við.
Emre Can og James Morrison eigast við. vísir/getty
West Bromwich Albion og Liverpool gerðu markalaust jafntefli á The Hawthorns í ensku úrvalsdeildinni í dag.

Liverpool var miklu meira með boltann í leiknum en tókst að koma boltanum yfir línuna.

Eftir frábært gengi framan af ári hefur fjarað undan Liverpool að undanförnu en liðið hefur aðeins fengið fjögur stig í síðustu fjórum deildarleikjum sínum.

Liverpool er með 58 stig, sex stigum frá Meistaradeildarsæti. Manchester City getur breikkað það bil í níu stig með sigri á Aston Villa á eftir.

West Brom siglir lygnan sjó í 13. sæti.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×