Erlent

Meirihluti Aleppo nú undir yfirráðum sýrlenska stjórnarhersins

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Stjórnarliði horfir yfir Aleppo.
Stjórnarliði horfir yfir Aleppo. Vísir/AFP
Sýrlenski stjórnarherinn hefur náð meirihluta borgarinnar Aleppo undir sitt vald. BBC greinir frá.

Þetta er ljóst eftir að herinn tók Tariq al-Bab hverfið í austurhluta borgarinnar á föstudag.  Austurhluti borgarinnar hefur verið undir stjórn uppreisnarmanna í fjögur ár.

Á síðustu ellefu mánuðum hefur stjórnarhernum vaxið ásmegin þökk sé loftárásum Rússa og í nóvember hóf herinn stórsókn inn í austurhluta borgarinnar.

Sýrlensk mannréttindasamtök segja að allt að þrjú hundruð manns hafa látið lífið í átökum í austurhluta borgarinnar frá því sókn stjórnarhersins hófst í síðasta mánuði. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×