Viðskipti innlent

Meiri velta í vændisstarfsemi á Íslandi en í Svíþjóð

Snærós Sindradóttir skrifar
21 maður mætti fyrir dóm í umfangsmiklu vændismáli í nóvember. Þinghaldið var lokað og nöfn ákærðu ekki gerð opinber.
21 maður mætti fyrir dóm í umfangsmiklu vændismáli í nóvember. Þinghaldið var lokað og nöfn ákærðu ekki gerð opinber.
Velta ólöglegrar starfsemi á borð við vændi, fíkniefni, smygl og heimabrugg er talin nema að meðaltali 6,6 milljörðum króna á ári hverju, samkvæmt tölum sem kynna á í Seðlabanka Íslands í dag.

Hagstofa Íslands mun í september undirgangast nýja staðla Evrópska efnahagssvæðisins fyrir þjóðhagsreikninga. Staðlarnir gera meðal annars kröfu um að velta ólöglegrar starfsemi sé tekin með í reikninginn. Hagstofa Íslands mun til að byrja með miða við samantekt úr meistararitgerð Sigurlilju Albertsdóttur hagfræðings frá árinu 2012.

Í rannsókn Sigurlilju kemur fram að Ísland sé á pari við Tékkland í veltu fíkniefna með rúm 0,2 prósent af vergri landsframleiðslu (VLF). Það er töluvert hærra hlutfall en hjá Danmörku og Svíþjóð þar sem fíkniefni ná ekki 0,1 prósenti af VLF.

Sigurlilja Albertsdóttir hagfræðingur.
Hlutfall vændis af VLF er langhæst í Tékklandi eða tæp 0,24 prósent. Íslendingar sitja fyrir ofan Svíþjóð með 0,06 prósent af VLF í vændisstarfsemi á meðan hlutfallið í Svíþjóð er 0,02 prósent. Tölurnar miða við tímabil þar sem sala á vændi var ólögleg.

„Það er huglægt mat hvort fólki þykir þetta lágt hlutfall eða hátt. Niðurstöður geta aldrei orðið betri en forsendur þeirra gagna sem til staðar eru. Þetta er sá hluti hagkerfisins sem vill ekkert láta mæla sig,“ segir Sigurlilja.

Hún segir tölurnar annars vegar fengnar með því að skoða framboð, úr upplýsingum lögreglu, og hins vegar eftirspurn. Þá eru meðal annars skoðaðar fyrirliggjandi upplýsingar frá SÁÁ. „Þær mælingar sem við erum með sýna að þetta er mjög lítið hlutfall af landsframleiðslunni. Þetta gæti verið mun meira,“ segir Sigurlilja.

Meistararitgerð Sigurlilju má nálgast hér.


Tengdar fréttir

Verjandi segir vændi ekki stundað á Strawberries

Lögmaður eiganda kampavísins-klúbbsins Strawberries segir það vera af og frá að staðurinn og starfsmenn hans haft milligöngu um vændi eða hagnast af slíkri starsfemi. Á fimmta tug lögreglumanna tók þátt í umfangsmiklum aðgerðum lögreglunnar í gær.

Segir vændisstarfsemi viðgangast á stefnumótasíðu

Verkefnastýra hjá Stígamótum segir vændisstarfsemi viðgangast á íslenskri stefnumótasíðu þar sem fólk selur meðal annars kynlífsmyndbönd af sjálfu sér. Eigandi síðunnar þvertekur fyrir að um vændi sé að ræða, síðan sé ætluð fólki sem aðhyllist svokölluð djörf stefnumót.

Meint vændiskona kom 30 sinnum til Íslands á fimm árum

Konan sem handtekin var í lok síðasta mánaðar vegna rannsóknar á meintri vændisstarfsemi er talin hafa komið hingað til lands um það bil þrjátíu sinnum á um fimm ára tímabili, í þeim tilgangi að stunda hér vændi, að því er heimildir Fréttablaðsins herma.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×